Humarhátíð Fréttir
Gleði og rythmasveitin Rauðir Dreglar með uppákomu á Humarhátíð
Rauðir dreglar
Gleði-og rithmasveitin Rauðir Dreglar voru stofnaðir fyrir mörgum árum og æfðu stíft en þeir hafa komið fram m.a. á árshátíðum Kvennakórs Hornafjarðar og á Humarhátíð. Lítið hefur farið fyrir hljómsveitinni síðustu ár þar sem tveir meðlimir sveitarinnar fluttu suður. Nú hafa æfingar verið teknar upp að nýju og hafa meðlimirnir hist reglulega þennan veturinn. Hist hefur verið bæði í Reykjavík og á Höfn og heilu helgarnar verið nýttar til æfinga. Í sveitinni eru Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Vilborg Þórhallsdóttir , Súsanna Björk Torfadóttir, Jónína Einarsdóttir, Erna Gísladóttir og Þórhildur Ásta Magnúsdóttir. Margir aðdáenda sveitarinnar hafa beðið eftir "come back " Rauðra dregla en þeir munu koma fram á Humarhátíð í ár. Þeir verða á aðalsviðinu á föstudagskvöldinu og munu svo skemmta gestum í tjaldi á hátíðarsvæðinu sama kvöld og hefjast herlegheitin klukkan 23:00 og munu Rauðir Dreglar spila fram á nótt.




