Humarhátíð Fréttir
Undirbúningur fyrir Humarhátíð 2010 hafinn
Humarhátíð
Undirbúningur fyrir humarhátíð sumarsins er nú hafin af fullum krafti. Fyrirhugað er að hátíðin verði með sama móti og undanfarin ár og má þar nefna sem dæmi viðburði eins og dansleiki í íþróttahúsi og Pakkhúsi, heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna, kassabílarallý, kúadellulottó, ljósmyndamaraþon, varðeld og söng. Hátíðin verður fyrstu helgina í júlí, 2.-4. júlí, og verður sama staðsetning og í fyrra.
Áhugi er fyrir því að fá bæjarbúa til að taka virkan þátt í undirbúningi og skipulagningu hátíðarinnar. Þeir sem vilja taka þátt í því starfi eru beðnir um að hafa samband við Valda í síma 868-6865 / sindri@hfn.is, Guðlaugu Ósk í síma 867-8743 / gudlaugp@hornafjordur.is eða Söndru Björgu í síma 694-8845 / sbs@hi.is. Með von um góð viðbrögð Undirbúningsnefnd




