Humarhátíð Fréttir

Risør
Risør
Mynd 10 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

27.06.2009

Humarhátíð haldin árlega í Risør í Noregi.

 

Nú þegar Humarhátíðin á Höfn nálgast er gaman að segja frá því að Humarhátíðir eru haldnar á fleiri stöðum en hér, t.d. í Maine og California í Bandaríkjunum,  Nova Scotia í Canada og í Noregi. Hornafjörður á vinabæ í Noregi, Risør, sem er einn af „hvítu bæjunum“ sem liggja við suðurströndina. Bærinn er frægur fyrir viðarbátahátíðina sem haldin er fyrstu vikuna í ágúst ár hvert og einhverjir Hornfirðingar hafa farið á. Risør er vinsæll ferðamannastaður og búa þarna tæplega 7000 manns.

Þegar starfsmenn rikivatnajokuls.is voru á ferð í Noregi sumarið 2007 var komið við í Risør og tóku þeir þá eftir auglýsingum við sædýra og fiskveiðisafnið „ Risør Akvarium“ um væntanlega Humarhátíð í október sama ár. Þetta þótti stórmerkilegt og við frekari eftirgrennslan kom í ljós að þetta var í fyrsta skiptið sem til stóð að halda Humarhátíð í Risør. Upphafsmaður þessa er Bjørn Preben Anfinsen frá Risør. Lokaverkefni hans úr háskólanámi í ferðamálafræði í Osló var þetta verkefni og gekk þetta svo vel að þetta varð að árvissum viðburði. Þegar blaðamaður vefsins hafði samband við hann vissi hann ekki um Humarhátíðina hér á Höfn né heldur að Höfn væri þeirra vinabær. Fannst honum þetta alveg ótrúlegt og skemmtileg tilviljun og stakk upp á samvinnu eða einhverskonar sambandi milli vinabæjanna í sambandi við Humarhátíðirnar.

Í Risør er löng hefð fyrir humarveiðum og undan ströndum bæjarins er eitt af fjórum humarfriðunarsvæðum sem komið hefur verið upp við Skagarakströndina. Norski humarstofninn er í útrýmingarhættu meðal annars vegna veiðiþjófnaðar og „innrásar“ ameríska humarstofnsins á grunn Noregsstranda. Til að sporna við þessu hafa verið settar strangari veiðireglur, sett upp friðunarsvæði og er í gangi rannsóknarverkefni á Sædýrassafninu í Risör með ræktun á humar sem síðan er sleppt villtum, „einskonar vöggustofa í flotkví“.

Yfirskrift Humarhátíðarinnar í Risør er að efla humarstofninn með bæði beinum aðgerðum, fræðslu og breyttri vitund fólks um humarinn.
Á dagskránni  er humarinn í aðalhlutverki. Í auglýsingu frá þeim er þetta orðað nokkurn vegin svona í íslenskri þýðingu: „Humarhelgina hyllum við aftur humarinn í Risør með upplifun, lystisemdum og faglegum fókus, og mun hátíðin efla bæði þig og humarinn.“ Það er mikil og metnaðarfull fræðileg dagskrá en einnig fræðandi dagskrá og skemmtun fyrir alla aldurshópa. Til dæmis er boðið upp á prufuveiðar á humri, að sleppa merktum humri og fiskveiðikeppni en einnig margskonar skemmtanir og ekki síst skemmtun fyrir bragðlaukana! Fjölbreytt úrval af humri og öðru sjávarfangi er í boði á hátíðinni og haldin vínsmökkunar og /eða matreiðslunámskeið.

Humarhátíðin hjá þeim í Risør er skipulögð af Samtökum ferðaþjónustuaðila í Risør í samvinnu við sveitarfélagiðið (Risør kommune), Sædýra og fiskveiðisafnið ( Risør Akvarium), Aust-Agder fylki, Fiskistofu (Fiskedirektoratet) og Hafrannsóknarstofnun (Havforskningsinstituttet).

Fyrir áhugasama er hægt að skoða vefsíðu þeirra hér.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica