Humarhátíð Fréttir
Skiptimarkaður með íþróttavörur
Við fótboltamömmurnar ákváðum að stofna til skiptimarkaðar á íþróttamóti Humarhátíðarinnar. Hugmyndina fengum við eftir tíð kaup af fótboltaskóm og fótboltavarningi sem var síðan lítið notaður vegna örra vaxtarspretta barna okkar.
Markaðurinn verður á íþróttavellinum og geta allir sem sitja uppi með lítið notaðar íþróttavörur komið og skipt þeim. Einnig geta ungir fótboltamenn skipt hinum sívinsælu fótboltaspilum. Hvetjum við alla til að róta í skápum og nýta sér þennan góða möguleika.
Allstaðar liggur eitthvað sem er ónotað sem gæti komið öðrum að gagni og algjör synd að láta slíka hluti daga uppi inní skáp hjá sér... Markaðurinn verður á laugardeginum en ekki er kominn nákvæm tímasetning og munum við auglýsa það þegar nær dregur.
Vonumst til að sjá sem flesta á vellinum.
Kolla og Hulda.



