Humarhátíð Fréttir
Fyrirlestur um humar á Humarhátíð
Á Humarhátíð mun Guðmundur í Matís vera með áhugaverðan fyrirlestur um humar. Í fyrirlestrinum fjallar Guðmundur vítt og breitt um humar. Farið er yfir helstu tegundir og furðulegar tegundir humra skoðaðar. Af nógu er að taka enda fleiri en 500 humartegundir þekktar í heiminum. Áhersla er á létta fræðslu um líffræði íslenska leturhumarsins og sögu veiða hér á Hornafirði. Sem dæmi um spurningar sem leitast verður við að svara má nefna:
- Hvert er útbreiðslusvæði humars á íslandsmiðum?
- Veiðum við mikið miðað við aðrar þjóðir?
- Hvernig þekkir maður í sundur karl og kerlingu?
- Hvað er stærsti humarinn sem veiðst hefur?
- Hvenær byrjuðu Hornfirðingar að veiða humar?
- Hvernig gengur tilhugalífið fyrir sig?
- Hvernig búa humrar?




