Humarhátíð Fréttir

Humarinn
 
 

11.06.2009

Humarlagið 2009

Það hefur verið í umræðunni í nokkur ár að búa til sérstakt Humarhátíðarlag á hverju ári líkt og gert er varðandi Þjóðhátíð í Eyjum og fleiri hátíðir.  Þetta hefur verið reynt a.m.k. einu sinni áður en þá gekk þetta ekki sem skildi einhverra hluta vegna.  Þá var lagið einnig eftir Heiðar Sigurðsson við texta Guðbjartar Össurarsonar.  Bjartur Logi söng, Heiðar spilaði á hljómborð og forritaði trommur, Brooks Hood spilaði á gítar, Þorsteinn Hermannsson á bassa og Björn Heimir Moritz á saxófón. Lagið er hægt að hlusta á inni 

Svo er spurning hvort hægt sé að telja Kæra Höfn sem humarhátíðarlag, en það var sem kunnugt er sigurlag í afmælislagakeppninni sem blásið var til í tengslum við 100 ára afmæli Hafnar.  Þá var líka gefinn út diskur með sama nafni og á honum er fullt af lögum sem oft eru spiluð á og í tenglum við humarhátíð.

Markmiðið með svona lagi er að skapa einhverskonar stemmingu meðal heimamanna, þannig að þeim finnist þetta vera þeirra lag. Lagið þarf að vera grípandi og eitthvað sem allir geta lært og sungið með. Einnig er það markmið með svona lagi að það nýtist til kynningar fyrir Humarhátíð. 

Í þetta skiptið var engin keppni eða neitt slíkt heldur gengu Heiðar og Valdi í málið. Heiðar samdi lag og texta, tók upp o.s.frv.  Vonast tekst þeim félögum að gera þetta að árvissum viðburði, hvort sem er með einhverskonar keppnisfyrirkomulagi eða öðrum hætti.

Lögin er hægt að hlusta á eða niðurhala á humar.is

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica