Humarhátíð Fréttir
Hið árlega þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar framundan!!!
Nú er komið að hinu sívinsæla þjóðarkvöldi þar sem alltaf komast færri að en vilja. Vinsældir Þjóðarkvöldsins hafa aukist með ári hverju enda er það hin fullkomna byrjun á Humarhátíð Hornfirðinga. Í ár er Þjóðarkvöldið haldið í fjórða sinn en fyrri ár hafa Hornfirðingar fengið tækifæri til að upplifað menningarheim Spánar, Þýskalands og Bandaríkjanna. Hver man ekki eftir hinum lifandi styttum sem tóku á móti gestum fyrir utan Sindrabæ á Spánarkvöldinu?
Á hverju ári hafa kvennakórskonur lagt á sig ómælda vinnu við að fá hina fallegu og frægu í heimsókn og mætti þar t.a.m. nefna Derrik og Harry litla frá Þýskalandi. Kvennakórkonum tókst að sjálfsögðu að toppa þá heimsókn og í fyrra mætti rokkkóngurinn sjálfur (sem er ekki dauður eftir allt saman) ásamt hinni þokkafullu Marilyn Monroe (sem mun alltaf lifa í hjörtum okkar) að ónefndum hinum ógleymanlega Chaplin.
Nú er bara að sjá hvaða land verður fyrir valinu í ár. Hversu frægir verða gestirnir sem stíga á stokk í ár? Er hægt að gera matinn ljúffengari en í fyrra? Eigum við eftir að hlæja meira? Dansa meira? Syngja meira? Dr... meira? Nú er bara að koma og sjá.




