Humarhátíð Fréttir
Útimarkaður á Heppunni
Á laugardaginn verður haldinn útimarkaður í gömlu rústunum á Heppunni. Skorað er að Hornfirðinga að hreinsa nú ærlega til í bílskúrum og geymslum og taka þátt í þessari uppákomu. Markaðurinn hefst klukkan 14 og þurfa bílskúrsbraskarar þá að vera búnir að koma sér fyrir. Áhugasamir braskarar tilkynna þátttöku sína í síma 470 8050, það kostar ekkert að vera með en hver og einn kemur með borð undir sitt hafurtask. Grúskarar ættu að geta fundið ýmislegt áhugavert, fótanuddtæki, stráhatta og strápils, gamlar plötur, bolla og glös og ýmislegt annað áhugavert. Frést hefur af ungri snót sem undirbýr tiltekt í fataskápnum og ætlar að selja bílfarma af fatnaði, skóm og öðru sem prýtt getur ungar snótir. Við sjáumst hress á útimarkaði á laugardag! Kær kveðja skransalinn og bílskúrsbraskarinn ;-)




