Humarhátíð Fréttir

Jóna Eðvaldsdóttir landar við Óslandsbryggju

Peningalyktin verður ekki um helgina - 04.07.2008 Júlí

Eins og allir hafa orðið varir við er bræðslan komin í gang, og loksins segja margir! En stundum vill fylgja starfseminni lykt sem mörgum finnst óþægileg en flestir þekkja sem peningalykt - og ekki að ósekju. Vefurinn hafði samband við Ingva Sigurðsson framkvæmdastjóra fiskimjölsverksmiðjunnar og sagði hann að ekki yrði brætt neitt yfir helgina. Við ætlum ekki að angra nábúa okkar og aðra sem hér eru með peningalyktinni meðan humarhátíðin stendur yfir. Ingvi segir að Fiskimjölsverksmiðjan sé búin öllum þeim búnaði sem krafist er í svona verksmiðju en það sé bara ekki hægt að losna algjörlega við lyktina frá bræðslunni en við ætlum að gera enn betur og endurbæta þennan búnað og erum með mann í vinnu til að finna út hvað er árangursríkast og best. Lesa meira
 
Akureyin að komast í hátíðarbúning

Akurey komin í hátíðarbúning - 04.07.2008 Humarhátíð Fréttir

Karlarnir í karlakórnum Jökli unnu fram á nótt við að koma Akurey í hátíðarbúning og hefði mátt halda að þarna væri vinnuflokkur úr slipp að störfum, svo faglegir voru þeir. Á meðan héldu kvennakórskonur sitt þjóðarkvöld í Sindrabæ þar sem hvert sæti var skipað og vel það. Að sögn gesta þeirra slógu þær algjörlega í gegn og verða að huga að stærra húsi fyrir næsta þjóðarkvöld þar sem Sindrabær er orðinn of lítill. Bestfiskmenn verða með humar framreiddan á ýmsa vegu við Akureynna um helgina. Þar verður hægt að gæða sér á grilluðum humar í pylsubrauði en það sló rækilega í gegn í fyrra. Einnig verður hægt að kaupa heila grillbakka af humri og drykkjarföng. Lesa meira
 
Humarhátíðin á Lönguhólum

Humarhátíð á Lönguhólum - 04.07.2008 Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð á leikskólanum Lönguhólum hófst kl 8 í morgun, þá var garðurinn skreyttur, flaggað og "Kæra Höfn" diskurinn settur í tækið. Mikið er búið að vera að gera hjá börnunum í að búa til skraut og vera í leikjum eftir hádegið. Gátu svo þau sem vildu fengið andlitsmálun og margt annað skemmtilegt var í boði. Í hádeginu var borðað úti eins og mjög oft, í þetta skiptið voru pylsur í tilefni dagsins. Þegar verið var að byrja að borða kom þessi góða gróðrarskúr sem börnin kipptu sér nú ekki upp við, en svo fór að rigna hressilega seinnipartinn. Lesa meira
 
Hafnarsvæði gömul mynd

Útimarkaður á Heppunni - 03.07.2008 Humarhátíð Fréttir

Á laugardaginn verður haldinn útimarkaður í gömlu rústunum á Heppunni. Skorað er að Hornfirðinga að hreinsa nú ærlega til í bílskúrum og geymslum og taka þátt í þessari uppákomu. Markaðurinn hefst klukkan 14 og þurfa bílskúrsbraskarar þá að vera búnir að koma sér fyrir. Áhugasamir braskarar tilkynna þátttöku sína í síma 470 8050, það kostar ekkert að vera með en hver og einn kemur með borð undir sitt hafurtask. Grúskarar ættu að geta fundið ýmislegt áhugavert, fótanuddtæki, stráhatta og strápils, gamlar plötur, bolla og glös og ýmislegt annað áhugavert. Frést hefur af ungri snót sem undirbýr tiltekt í fataskápnum og ætlar að selja bílfarma af fatnaði, skóm og öðru sem prýtt getur ungar snótir. Lesa meira
 
Gísli Disco Fever

Fjöldi frægra gesta á þjóðarkvöldi Kvennakórsins - 01.07.2008 Létt grín

Eins og allir ættu að hafa orðið varir við hefur verið mikið að gera hjá kvennakórskonum undanfarna daga í að undirbúa komu frægra gesta til Hornafjarðar. Heyrst hefur að einkaþota John Travolta muni lenda á Hornafjarðarflugvelli kl 17 á fimmtudaginn. Þar af leiðandi verður mjög mikil öryggisgæsla á leiðinni frá flugvellinum að Hótel Höfn þar sem tekin hefur verið frá efsta hæðin undir hann og hans fylgdarlið. Þess vegna eru Hornfirðingar beðnir um að halda sig innandyra eða þá í hliðargötum á meðan bílalestin með Travolta og hans fólk fer framhjá. Sést hefur til Gísla á Hótelinu vera að æfa Travolta sporin og er það mál manna að þetta sé bara ansi gott hjá honum! Lesa meira
 
Huldarós

Hulda Rós og Rökkurtríóið í Pakkhúsinu - 01.07.2008 Menning

Annað kvöld, miðvikudaginn 2. júlí verða tónleikar í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Eru tónleikarnir haldnir í samstarfi við Menningarmiðstöð Hornafjarðar og má einnig segja að þetta sé fyrsti viðburður Humarhátíðar á Höfn sem fer fram næstu helgi. Á þessum tónleikum kemur fram hin tiltölulega nýja hljómsveit Hulda Rós og Rökkurtríóið. Hljómsveitin hefur nú þegar komið fram á tveimur tónlistarhátíðum á þessu ári, Norðurljósablús á Höfn og Hammondhátíð á Djúpavogi og fengið góða dóma. Hljómsveitina skipa Sigurður Guðnason á gítar, Bjartmar Ágústsson á kontrabassa og rafbassa, Eymundur Ragnarsson á trommur, Heiðar Sigurðsson á píanó og hammond ásamt Huldu Rós Sigurðardóttur sem syngur. Lesa meira
 

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica