Humarhátíð Fréttir

Stemning_a_Humarhatid_2003
Stemning á Humarhátíð 2003
Stemning á Humarhátíð (úr myndasafni)

26.06.2008

Töfrar á Humarhátíð

Nú styttist í árlega Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hún verður eins og venjulega haldin fyrstu helgina í júlí, þ.e. 4. ? 6. júlí. Að venju verður dagskráin fjölbreytt á hátíðinni og þetta árið er lögð sérstök áhersla á að höfða til sem flestra aldurshópa. Að sjálfsögðu vonumst við til þess að sem flestir sæki okkur heim þessa helgi og fái tækifæri til þess að kynnast Hornafirði og Hornfirðingum. Þess vegna er mikilvægt að allir sem vettlingi geta valdið leggist á eitt til þess að bærinn verði eins snyrtilegur og mögulegt er fyrir Humarhátíðina. Ekki er neinum blöðum um það að fletta að snyrtilegur bær stuðlar að skemmtilegri hátíð.

Nú er ljóst að Bjarni töframaður mun heimsækja okkur á Humarhátíð. Bjarni hefur getið sér gott orð sem töframaður og komið víða fram. Hann verður með sýningu á hátíðarsviðinu á laugardagskvöldið og eins mun hann fara um hátíðarsvæðið í trúðabúningi á laugardeginum og útbúa blöðrufígúrur fyrir yngstu kynslóðina. Það er alveg á hreinu að Bjarni mun kitla hláturtaugarnar hjá gestum Humarhátíðar sem og gleðja lítil hjörtu með nærveru sinni.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica