Humarhátíð Fréttir

Frá hátíðarhöldunum á laugardag
Frá hátíðarhöldunum á laugardag

24.06.2008

Tónlistin í fyrirrúmi á Humarhátið

Að venju skipar tónlistin veigamikið hlutverk á Humarhátíð. Eins og venjulega verður úrval tónlistarmanna mikið. Að þessu sinni verða hornfirskir tónlistamenn í meirihluta á þetta árið. Hulda Rós og Rökkurtríóið verða í Pakkhúsinu á miðvikudagskvöldinu. Parket spilar á bryggjuballinu á föstudagskvöldið og á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. Hornafjarðarkvöldið í Sindrabæ verður á sínum stað á föstudagskvöldið og þar verður Kusk ásamt Jonna og félögum í hljómsveitinni Undur og heyrst hefur að Mæðusveitin Sigurbjörn verði á Kaffi Horninu.
Í Pakkhúsinu spila Bjartur Logi, Gulli kennari, Bjössi tengdasonur Sæma múrara að ógleymdum hinum geðþekka pípara og trommuleikar Braga Kalla en þessi hljómsveit kallar sig Ungmennafélagið. Laugardagskvöldið spilar síðan Kuskið í Pakkhúsinu. Síðan hafa verið uppi raddir um það að Hljómsveit Hauks Þorvalds spili á Víkinni á laugardagskvöldið. Það má því með sanni segja að þetta árið segjum við; hornfirskt, já takk.
En það verða ekki bara hornfirðingar sem halda uppi fjörinu með tónlist á Humarhátíð. Dr. Gunni og félagar verða á hátíðarsviðinu á föstudagskvöldinu. Ljóst er að hann mun taka nokkur lög úr söngleiknum Abbabbabb og vonandi tekur hann Prumpulagið fyrir krakkana. Svo væri heldur ekki amalegt að heyra eitthvað pönk frá Doktornum. Tónlistin verður því í fyrirrúmi á þessari Humarhátíð eins og alltaf.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica