Humarhátíð Fréttir
Lögð áhersla á að höfða til sem flestra aldurshópa
Humarhátíð 2008
Eins og flestir vita þá styttist nú óðfluga í Humarhátíð en hún er eins og alltaf haldin fyrstu helgina í júlí. Setning hátíðarinnar þetta árið verður því föstudaginn 4. júlí og stendur hátíðin fram á sunnudaginn 6. júlí. Að venju verður mikið um að vera og lögð áhersla á það í dagskránni að höfða til sem flestra aldurshópa. Á þessari Humarhátíð verður einnig lögð sérstök áhersla á heimatilbúið skemmtiefni, þ.e. að Hornfirðingar sjálfir sjá um skemmta sjálfum sér og öðrum gestum. Það þarf samt ekki að koma neinum á óvart að Felix Bergsson mætir á Humarhátíð þetta árið og nú með Gunna vini sínum. Þeir félagar ætla að stjórna skemmtidagskránni á sviðinu á föstudags- og laugardagskvöldinu. Eins koma þeir til með að starta Kassabílarallinu og stjórna söngvarakeppni barna. Það má kannski segja að Felix sé að verða jafn sjálfsagður gestur á Humarhátíð og humarinn sjálfur.
Nú styttist í að endanleg dagskrá verði tilbúin og þá verður hún aðgengileg á vefnum og gefin út sem bæklingur þannig að allir geti kynnt sér það sem í boði verður. Eins og á síðasta ári eru það knd. Sindra og Björgunarfélag Hornfjarðar sem sjá um framkvæmd Humarhátíðar.




