Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð 2006

Óskað eftir sjálfboðaliðum - 28.06.2008 Menning

Að halda Humarhátíð krefst markviss undirbúnings og mikillar vinnu. Margar hendur koma að því að gera hverja Humarhátíð að veruleika og sjálfboðaliðar leggja sitt að mörkum til þess að hátíðin megi heppnast sem best. Mörg félagasamtök hafa komið að skipulagningu og undirbúningi Humarhátíðarinnar í gegnum árin. Nægir þar að nefna Kiwanisklúbbinn ÓS, Karlakórinn Jökul, Kvennakór Hornafjarðar, Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Í ár er hátíðin í höndum knattspyrnudeildarinnar og björgunarfélagsins. Starfsmaður er framkvæmdastjóri Sindra, Valdemar Einarsson. Björgunarfélagið og knattspyrnudeildin reyna að sjálfsögðu eftir fremsta megni að manna þau störf sem þarf að manna á hátíðinni. En það er alltaf hægt að nýta fleira fólk á öllum aldursstigum t.a.m. í gæslu á dansleikjum og á hátíðarsvæðinu. Lesa meira
 
Listasmiðja 2008

List og líf á Humarhátíð - 27.06.2008 Menning

Það verður mikið um að vera á Humarhátíð og bætist stanslaust í dagskránna. Það er frábært að sjá allt þetta úrval og það að áhersla sé lögð á hornfirskar hljómsveitir er til eftirbreytni. Fjölbreyttar sýningar að tryggja að flestir finni eitthvað við sitt hæfi og um að gera að flakka á milli sýninga, sýna sig og sjá aðra um leið og við njótum þess sem allir þessir listamenn hafa fram að færa. Í júní hefur verið starfandi listasamiðja fyrir börn á aldrinum 9- 16 ára og má búast við að þátttakendur í henni láti að sér kveða á Humarhátíð með leik og söng. Hafa Siggi Palli og Halldóra séð um hana og krakkarnir fjölmennt til þeirra. Verður spennandi að fylgjast með þeim en þegar nær dregur Humarhátíðinni fáum við betur að vita hvar þau verður að finna Lesa meira
 
Stemning_a_Humarhatid_2003

Töfrar á Humarhátíð - 26.06.2008 Humarhátíð Fréttir

Nú styttist í árlega Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hún verður eins og venjulega haldin fyrstu helgina í júlí, þ.e. 4. – 6. júlí. Að venju verður dagskráin fjölbreytt á hátíðinni og þetta árið er lögð sérstök áhersla á að höfða til sem flestra aldurshópa. Að sjálfsögðu vonumst við til þess að sem flestir sæki okkur heim þessa helgi og fái tækifæri til þess að kynnast Hornafirði og Hornfirðingum. Þess vegna er mikilvægt að allir sem vettlingi geta valdið leggist á eitt til þess að bærinn verði eins snyrtilegur og mögulegt er fyrir Humarhátíðina. Ekki er neinum blöðum um það að fletta að snyrtilegur bær stuðlar að skemmtilegri hátíð. Lesa meira
 
Amerískt kvöld Kvennakórsins

Amerískt kvöld hjá Kvennakórnum - 26.06.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar verður á sínum stað í Sindrabæ fimmtudaginn 3.júlí eða í byrjun Humarhátíðar. Að venju verður mögnuð skemmtidagskrá, hlaðborð og söngur svo fátt eitt sé nefnt. Þar sem 4.júlí, þjóðhátíðardagur BNA er daginn eftir fannst þeim kvennakórskonum tilvalið að vera með norður-amerískt þema í þetta sinn. Þær hafa lagt mikið upp úr því að finna allt sem amerískt er og búast má við ýmiskonar amerískum mat, drykk og hver veit nema Clinton láti sjá sig? A.m.k. hefur frést af þeim kvennakórskonum úti í Ameríku í samningaviðræðum við fallega og fræga fólkið! Einnig sást til þeirra Ernu og Ingibjargar þar sem þær laumuðust á miðilsfund. Hver veit hvað hefur komið út úr því? Lesa meira
 
Frá hátíðarhöldunum á laugardag

Tónlistin í fyrirrúmi á Humarhátið - 24.06.2008 Humarhátíð Fréttir

Að venju skipar tónlistin veigamikið hlutverk á Humarhátíð. Eins og venjulega verður úrval tónlistarmanna mikið. Að þessu sinni verða hornfirskir tónlistamenn í meirihluta á þetta árið. Hulda Rós og Rökkurtríóið verða í Pakkhúsinu á miðvikudagskvöldinu. Parket spilar á bryggjuballinu á föstudagskvöldið og á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. Hornafjarðarkvöldið í Sindrabæ verður á sínum stað á föstudagskvöldið og þar verður Kusk ásamt Jonna og félögum í hljómsveitinni Undur og heyrst hefur að Mæðusveitin Sigurbjörn verði á Kaffi Horninu. Í Pakkhúsinu spila Bjartur Logi, Gulli kennari, Bjössi tengdasonur Sæma múrara að ógleymdum hinum geðþekka pípara og trommuleikar Braga Kalla en þessi hljómsveit kallar sig Ungmennafélagið. Laugardagskvöldið spilar síðan Kuskið í Pakkhúsinu. Síðan hafa verið uppi raddir um það að Hljómsveit Hauks Þorvalds spili á Víkinni á laugardagskvöldið. Það má því með sanni segja að þetta árið segjum við; hornfirskt, já takk. Lesa meira
 
Humar_AUT10854

Lögð áhersla á að höfða til sem flestra aldurshópa - 20.06.2008 Humarhátíð Fréttir

Eins og flestir vita þá styttist nú óðfluga í Humarhátíð en hún er eins og alltaf haldin fyrstu helgina í júlí. Setning hátíðarinnar þetta árið verður því föstudaginn 4. júlí og stendur hátíðin fram á sunnudaginn 6. júlí. Að venju verður mikið um að vera og lögð áhersla á það í dagskránni að höfða til sem flestra aldurshópa. Á þessari Humarhátíð verður einnig lögð sérstök áhersla á heimatilbúið skemmtiefni, þ.e. að Hornfirðingar sjálfir sjá um skemmta sjálfum sér og öðrum gestum. Það þarf samt ekki að koma neinum á óvart að Felix Bergsson mætir á Humarhátíð þetta árið og nú með Gunna vini sínum. Þeir félagar ætla að stjórna skemmtidagskránni á sviðinu á föstudags – og laugardagskvöldinu. Eins koma þeir til með að starta Kassabílarallinu og stjórna söngvarakeppni barna. Það má kannski segja að Felix sé að verða jafn sjálfsagður gestur á Humarhátíð og humarinn sjálfur. Lesa meira
 

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica