Humarhátíð Fréttir

Humarstelpur í Papós
Humarstelpur í Papós
Humarstelpur (úr myndasafni)

29.06.2007

Hvar fær maður humar á Humarhátíð?

Hver er tilgangurinn með Humarhátíðinni? Um hvað snýst hún eiginlega? Það eru margir sem spyrja sig þessara spurninga og svörin eru eflaust jafn mörg og þeir sem reyna að svara þeim vegna þess að upplifun fólks á hátíðinni er mjög mismunandi. Það sem einum finnst ómissandi þáttur í hátíðahöldunum finnst öðrum kannski ekki eins spennandi eins og gengur. En eitt geta allir verið sammála um og það er að Humarhátíð á Hornafirði snýst um gómsætt sjávarfang, humarinn. Humarinn og humarvinnsla er eitt af einkennismerkjum Hornafjarðar og margir öfunda okkur af framboðinu á Humri hér á svæðinu. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að halda því á lofti að humarinn er hornfirsk afurð og Humarhátíðin er liður í því.

En hvar fær maður humar á Humarhátíð? Þessi spurning heyrist oft í aðdraganda hátíðarinnar og á hátíðinni sjálfri. Humarinn verður út um allt að þessu sinni en hann skríður ekki upp í fangið á fólki á bryggjunni. Hægt verður að nálgast þessa lúxusvöru á mörgum stöðum á hátíðinni þetta árið og verður humarinn framreiddur með ýmsum hætti þannig að allir ættu að geta fundið humar við sitt hæfi á Humarhátíð 2007.
Boðið verður upp á frosinn humar og humar tilbúinn á grillið í Nettó í Miðbæ alla helgina. Við hið sögufræga skip, Akurey á móti Ásgarði verður grillaður humar að hætti Bestfisksmanna og þeir munu einnig selja frosinn humar og humar sem er tilbúinn á grillið. Hleinin verður á sínum stað í pakkhúsinu og mun bjóða upp á sínar víðfrægu humarlokur og Hafnarbúðin er með gómsæta humarsúpu. Þá er rétt að minnast á það að veitngastaðirnir, Hótel Höfn og Kaffi Hornið, munu nú sem endranær bjóða uppá marga ljúffenga Humarrétti. Eflaust hefur það heldur ekki farið fram hjá nokkrum manni nýbúið er að opna á Hornfirði nýjan veitingastað, Humarhöfnina, sem sérhæfir sig í humarréttum. Þar er staddur þessa vikuna franskur kokkur sem er sérfræðingur í gastrónómíu. Á Humarhöfninni er heill humar aðalmálið.

Fyrir þá sem vilja fræðast um humarinn og líf hans þá verður fyrirlestur um humar í Pakkhúsinu á laugardeginum kl. 14:30 á vegum Matís. Á aðalsviðinu á bryggjunni verður síðan boðið upp á humarkappát þar sem fjórir einstaklingar verða valdir af handahófi og fengnir til þess að éta á sig gat af humri. Ekki ónýtt það.

Af þessari upptalningu má sjá að humarinn er svo sannarlega í aðalhlutverki á Hornafirði dagana 29. júní - 1. júlí og allir ættu að verða varir við humarinn og humarstemninguna á Hornafirði á Humarhátíð.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica