Humarhátíð Fréttir
Fjölbreytt dagskrá á Humarhátíð
Hin árvissa Humarhátíð okkar Hornfirðinga fer fram nú um helgina. Að þessu sinni eru það knattspyrnudeild Sindra og Björgunarfélag Hornafjarðar sem standa að hátíðinni og sjá um framkvæmd hennar. Forsvarmaður hátíðarinnar er Valdemar Einarsson, framkvæmdastjóri Sindra. Dagskrá hátíðarinnar er með nokkuð hefðbundnu sniði en alltaf leynast einhverjar nýjungar inn á milli. Þar má t.d. nefna fyrirlestur um humar á vegum Matís, tónleika með Heimilstónum og Jón Víðis töframann. Einnig er vert að minnast á það að hinn geysivinsæli skemmtikraftur Sveppi verður kynnir hátíðarinnar ásamt Felix Bergssyni sem er okkur Hornfirðingum að góðu kunnur fyrir störf sín á undangengnum humarhátíðum. Á hátíðinni verða líka fastir liðir sem alltaf vekja kátínu. Kassabílarallý verður á sínum stað, Humarhátíðarmót í golf og heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna.
Þá verða á sínum stað eins og venjulega kúadellulóttóið, keppni í burnout og Hornafjarðarkvöld í Sindrabæ þar sem fram koma hinar geysivinsælu hornfirsku hljómsveitir Braggabandið og Mæðusveitin Sigurbjörn halda uppi fjörinu.
Það verða síðan Ingó og hljómsveitin hans sem gengur undir nafninu Veðurguðirnir sem sjá um að halda uppi fjörinu á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Þeir verða einnig á bryggjusvæðinu á föstudags ? og laugardagskvöld með útidansleik. Ingó kom hingað í fyrra með hljómsveitinni Á móti sól og vakti mikla lukku.
Á hátíðarsvæðinu við bryggjuna verður útimarkaður, skemmtiatriði á sviði, söngvarakeppni undir stjórn Heiðars Sigurðssonar, pöbbastemning í Pakkhúsinu, humar grillaður um borð í Akureynni og Hleinin verður á sínum stað með sínar frábæru Humarlokur. Að vanda verða glæsileg leiktæki og hoppukastalar í boði fyrir börnin í hátíðarsvæðinu.
UMF. Máni í Nesjum á 100 ára afmæli á árinu og sunnudaginn 1. júlí mun Máni standa fyrir afmælismóti í frjálsum íþróttum á Mánavelli. Það er frábær endir á góðri helgi að drífa sig á Mánavöll með krakkana, reyna á sig í frjálsum íþróttum og fagna þessum tímamótum með Mánamönnum.




