Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð
Humarhátíð
Í skrúðgöngu á Humarhátíð

26.06.2007

Skrúðgangan á Humarhátíð

Nú styttist í hina árlegu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hátíðin fer fram helgina 29. júní - 1. júlí. Kvennakór Hornafjarðar ætlar að taka forskot á sæluna með því að halda þjóðakvöld í Sindrabæ fimmtudaginn 28. júní. Verður vafalaust jafn mikið stuð þar og á spænska kvöldinu í fyrra sem kvennakórinn hélt þá í Sindrabæ. Jafnframt verður lifandi tónlist á Víkinni sama kvöld. Skrúðganga Humarhátíðarinnar leggur af stað frá tjaldstæðinu föstudagskvöld kl. 20:00 og verður stefnan sett á bryggjuna líkt og undanfarin ár. Ýmis faratæki frá Menningarmiðstöðinni verða í fararbroddi skrúðgöngunnar að þessu sinni. Stefnt er að því að hátíðin verði formlega sett kl. 20:30 á bryggjunni og fellur það í hlut Bjargar Erlingsdóttur, framkvæmdastjóra Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, að setja hátíðina með formlegum hætti. Að lokinni setningu tekur við skemmtidagskrá á sviði, markaðstemning, leiktæki og útidansleikur svo eitthvað sé nefnt.

Gert er ráð fyrir því í dagskrá að hverfahátíðir hefjist kl. 18:00 á sömu stöðum og undanfarin ár. Humarhátíðarnefnd kemur ekki formlega að hverfahátíðunum þetta árið en hvetur þó fólk til að koma saman og gera sér glaðan dag t.d. grilla og fara í leiki. Skunda svo saman litrík frá sínum hverfum að tjaldstæðinu og fjölmenna í skrúðgönguna.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica