Humarhátíð Fréttir

Humarstelpur í Papós

Hvar fær maður humar á Humarhátíð? - 29.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Hver er tilgangurinn með Humarhátíðinni? Um hvað snýst hún eiginlega? Það eru margir sem spyrja sig þessara spurninga og svörin eru eflaust jafn mörg og þeir sem reyna að svara þeim vegna þess að upplifun fólks á hátíðinni er mjög mismunandi. Það sem einum finnst ómissandi þáttur í hátíðahöldunum finnst öðrum kannski ekki eins spennandi eins og gengur. En eitt geta allir verið sammála um og það er að Humarhátíð á Hornafirði snýst um gómsætt sjávarfang, humarinn. Humarinn og humarvinnsla er eitt af einkennismerkjum Hornafjarðar og margir öfunda okkur af framboðinu á Humri hér á svæðinu. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að halda því á lofti að humarinn er hornfirsk afurð og Humarhátíðin er liður í því. Lesa meira
 
Humar_AUT10854

Góða skemmtun á Humarhátíð - 28.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Nú er Humarhátíðin alveg að skella á. Vonandi er fólk komið í hátíðarskap og tilbúið að skemmta sér vel um helgina. Í kvöld kl. 20:00 má segja að hátíðarhöldin byrji með þýsku skemmtikvöldi kvennakórsins í Sindrabæ. Stelpurnar í kórnum eru nýkomnar úr endurnærandi ferð til Þýskalands og ætla og kynna fyrir okkur hinum siði og venjur þýskumælandi þjóðar. Spænska kvöldið tókst frábærlega hjá kórnum í fyrra og ekki er vafi á því að stemningin verður sú sama ef ekki meiri í kvöld. Forsala aðgöngumiða er í Tangó í miðbæ og kostar miðinn einungis 2000 kr. Sölumenn á vegum Humarhátíðarnefndar hafa gengið í hús undanfarin kvöld til þess að selja armbönd sem gilda inn á hátíðarsvæðið. Armböndin kosta 2000 kr. fyrir fullorðna og gilda þau inn á hátíðarsvæðið á bryggjunni, í pakkhúsið, í Sindrabæ og í Akureyna þann tíma sem hátíðin er í gangi. Lesa meira
 
Humarhátíð 2006

Armbönd – stórdansleikur - 28.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Armbönd á hátíðarsvæðið kosta 2000 kr.- fyrir fullorðna og 1000 kr.- fyrir börn. Armbönd fyrir fullorðna gilda á hátíðarsvæðið á bryggjunni, í pakkhúsið, í Sindrabæ og í Akureyna föstudag og laugardag. Armbönd fyrir börn gilda á hátíðarsvæðið og í leiktæki föstudag og laugardag. Vert er að minnast á að frítt er á leiksýningar fyrir börnin í Sindrabæ á laugardaginn kl. 11:00 og 15:00. Stórdansleikur í íþróttahúsinu verður á laugardagskvöldið og miðaverð þar er 2500 kr.- líkt og verið hefur undanfarin ár. Lesa meira
 
Þjóðarkvöld_Kvennakór

Þýskt skemmtikvöld í Sindrabæ - 27.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Kvennakórinn heldur sitt árlega þjóðarkvöld fimmtudaginn 28.júní í Sindrabæ og hefur þar með Humarhátíðina. Í fyrra voru þær kvennakórskonur með spænskt kvöld sem vakti mikla lukku og komust færri að en vildu. Að þessu sinni er þýskt þema, en kvennakórinn er nýkominn úr söngferð í Þýskalandi og hafa alla ferðina verið að undirbúa skemmtikvöldið og safna heimildum. Um reisuna má lesa betur síðar þegar ferðapistillinn verður birtur. Verður lögð áhersla á að skapa þýskt andrúmsloft, með knæpustemningu og harmonikku-tónlist. Boðið verður upp á þýskan mat, tónlist og söngatriði og ekki síst (al) þjóðleg skemmtiatriði. M.a. koma Heidi og Pétur og eins og hefð er komin á þá verður ljóðalestur í beinni þýðingu. Lesa meira
 
Tvær á Humarhátíð

Fjölbreytt dagskrá á Humarhátíð - 27.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Hin árvissa Humarhátíð okkar Hornfirðinga fer fram nú um helgina. Að þessu sinni eru það knattspyrnudeild Sindra og Björgunarfélag Hornafjarðar sem standa að hátíðinni og sjá um framkvæmd hennar. Forsvarmaður hátíðarinnar er Valdemar Einarsson, framkvæmdastjóri Sindra. Dagskrá hátíðarinnar er með nokkuð hefðbundnu sniði en alltaf leynast einhverjar nýjungar inn á milli. Þar má t.d. nefna fyrirlestur um humar á vegum Matís, tónleika með Heimilstónum og Jón Víðis töframann. Einnig er vert að minnast á það að hinn geysivinsæli skemmtikraftur Sveppi verður kynnir hátíðarinnar ásamt Felix Bergssyni sem er okkur Hornfirðingum að góðu kunnur fyrir störf sín á undangengnum humarhátíðum. Á hátíðinni verða líka fastir liðir sem alltaf vekja kátínu. Kassabílarallý verður á sínum stað, Humarhátíðarmót í golf og heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna. Lesa meira
 
Humarhátíð

Skrúðgangan á Humarhátíð - 26.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Nú styttist í hina árlegu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hátíðin fer fram helgina 29. júní – 1. júlí. Kvennakór Hornafjarðar ætlar að taka forskot á sæluna með því að halda þjóðakvöld í Sindrabæ fimmtudaginn 28. júní. Verður vafalaust jafn mikið stuð þar og á spænska kvöldinu í fyrra sem kvennakórinn hélt þá í Sindrabæ. Jafnframt verður lifandi tónlist á Víkinni sama kvöld. Skrúðganga Humarhátíðarinnar leggur af stað frá tjaldstæðinu föstudagskvöld kl. 20:00 og verður stefnan sett á bryggjuna líkt og undanfarin ár. Ýmis faratæki frá Menningarmiðstöðinni verða í fararbroddi skrúðgöngunnar að þessu sinni. Stefnt er að því að hátíðin verði formlega sett kl. 20:30 á bryggjunni og fellur það í hlut Bjargar Erlingsdóttur, framkvæmdastjóra Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, að setja hátíðina með formlegum hætti. Að lokinni setningu tekur við skemmtidagskrá á sviði, markaðstemning, leiktæki og útidansleikur svo eitthvað sé nefnt. Lesa meira
 
Stemning_a_Humarhatid_2003

Humarhátíð og 110 ára afmæli Hafnar - 23.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Líkt og flestir eflaust vita þá verður þetta viðburðaríkt sumar á Hornafirði. Nægir þar að nefna Unglingalandsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina. Humarhátíðin verður á sínum stað helgina 29. júní – 1. júlí. Einnig fagnar Sveitarfélagið Hornafjarðar 110 ára afmæli Hafnar og snemma á þessu ári var ákveðið tengja saman dagskrá Humarhátíðar og 110 ára afmælisins. Það ætti því að vera nóg um að vera á Hornafirði þessa helgi og vonandi geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Lesa meira
 

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica