Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð 2006
Humarhátíð 2006
Ómar og Fiddi frá Bestfisk að grilla humar fyrir hátíðargesti.

03.07.2006

Vel lukkuð Humarhátíð

Humarhátíðin á Höfn sem nú er haldin var 14. árið í röð fór mjög vel fram. Dagskrá hátíðarinnar var með hefðbundnum hætti þetta árið. Hún hófst á Spænsku kvöldi í Sindrabæ á fimmtudagskvöldinu þar sem Kvennakórskonur buðu upp á mat og skemmtiatriðum með spænskum hætti. Þótti kvöldið heppnast mjög vel og heyrðist víða að vonandi væri þessi þáttur hátíðarinnar kominn til að vera. Eftir Skrúðgöngu á föstudeginum fóru fram hátíðarhöld niður á bryggju þar sem Hjalti Þór Vignisson setti humarhátíðina. Veðrið á hátíðinni var mjög breytilegt, bæði rigning, sól og vindur en þokkalegt veður á laugardeginum.

Þetta árið voru ekki neinar formlegar hverfahátíðir á vegum Humarhátíðarnefndar en fólk eins og undanfarin ár hittist í sínum hverfum og gerðu sér glaðan dag áður en haldi var í skrúðgönguna.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica