Humarhátíð Fréttir
Spænskt kvöld í Sindrabæ
Kvennakór Hornafjarðar er með eitt af þeim atriðum sem ríða á vaðið á Humarhátíðinni og verður það spænskt kvöld í Sindrabæ og hefst það í kvöld kl.19:30. Eins og nafnið gefur til kynna þá verður kvöldið með spænsku yfirbragði og verður maturinn og drykkir sem þar verður á borð borið með spænskum hætti. Kvennakórskonur kalla kokkinn sinn José Banderas og segja þær hann einn þann fremsta í heimi í spænskri matargerð. Það verður ekki bara matur og drykkur sem verður í boði því kvennakórskonur bjóða einnig upp á skemmtiatriði og hefur heyrst úr herbúðum þeirra að þar munu m.a. verða sýndir flamenco dansar.
Húsið opnar kl. 19:30 og hefst veislan kl. 20:00. Þeir sem vilja panta miða geta haft samband við Guðlaugu í síma 849-3415, Ragnheiði í 843-0468, Ernu í 478-1093 og Gunnhildur 867-2964. Aðgangseyrir er kr. 2.000 í forsölu, en þeir sem koma inn af götunni greiða kr. 2.500.-




