Humarhátíð Fréttir

Tvær á Humarhátíð
Tvær á Humarhátíð
Tvær á Humarhátíð (úr myndasafni)
Mynd 1 af 2
1 2

22.06.2006

Humarhátíðin verður formlega sett föstudaginn 30. júní

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni að hin árvissa Humarhátíð okkar Hornfirðinga er að nálgast. Hátíðin verður formlega sett föstudaginn 30. júní á hátíðarsvæðinu okkar við höfnina. Að venju verða þó einhver atriði á fimmtudeginum áður en hátíðin er formlega sett. Sú venja hefur skapast undanfarin ár að mikið er lagt upp úr að fjölskyldudagskrá sé í hávegum höfð á hátíðinni. Hátíðin í ár verður engin undantekning frá því. Hoppukastalar verða fyrir börnin, kassaklifur, skemmtidagskrá á hafnarsvæðinu auk margs annars sem verður á boðstólum fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveitin Á móti Sól mun halda uppi stemningunni á hafnarsvæðinu og hún mun líka spila á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Í ár mun Humarhátíðarnefnd ekki standa fyrir neinum hverfahátíðum en þess í stað mun skrúðganga leggja af stað frá íþróttahúsinu kl. 20:00 á föstudagskvöldinu. Þó ekki verði um neinar formlegar hverfahátíðir að ræða að þessu sinni hvetur Humarhátíðarnefnd fólk að sjálfsögðu til þess að hittast í sínum hverfum, gera sér glaðan dag og fjölmenna í skrúðgönguna.

Í upphafi næstu viku mun nefndin fara af stað með sölu armbanda sem munu gilda inn á hátíðarsvæðið. Armböndin gilda líka inn í Pakkhúsið, Akureyna og í Sindrabæ á föstudagskvöldinu. Miðasala á dansleikinn í íþróttahúsinu fer fram á hátíðarsvæðinu og í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. Það er von okkar sem störfum í Humarhátíðarnefnd að þessu sinni að fólk taki vel á móti sölufólki okkar í næstu viku. Hátíð sem þessi kostar eins og allt töluverða fjármuni og þeir aðilar sem núna standa að Humarhátíðinni eru knattspyrnudeild Sindra, Kvennakór Hornafjarðar og Björgunarfélag Hornafjarðar. Hátíðin er mikilvægur liður fjáröflunarstarfi þessara félaga og því skiptir það miklu máli að allir leggist á eitt að gera hátíðina sem ánægjulegasta.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica