Humarhátíð Fréttir
Skráning hafin í kassabílarallið
Landsbankinn á Höfn er nú byrjaður að skrá þátttakendur í kassabílarallið sem verður haldið á Humarhátíðinni. Þeir sem skrá sig hjá Landsbankanum fá límmiða, skráningarmiða og reglur. Á síðustu humarhátíð tóku 13 bílar þátt í keppninni og 19 árið á undan. Að sögn Sigríðar Guðbjargar Garðarsdóttir hjá Landsbankanum þá er stefnt að því að enn fleiri taki þátt í keppninni í ár og hvetur hún pabba, mömmur og alla sem geta vettlingi valdið að byrja að smíða. Sigurvegarar í síðustu keppni voru Kristófer Hansson og Kristinn A Lúðvíksson með tímann 19,79 sek., önnur verðlaun hlutu Hannes Halldórsson og Eggert H Þórhallsson og þriðju verðlaun hlutu Þorgils Snorrason og Jón Páll Sveinsson með tímann 20.20 sek. Farandbikar fyrir flottasta bílinn hlutu Jón Bjarni Sindrason og Kolbrún Lilja Skúladóttir á Jöklajeppa-bíl, settur saman úr tveim hjólbörum. Farandbikar fyrir frumlegasta bílinn hlutu systkinin Hákon Logi Stefánsson og Sædís Harpa Stefánsdóttir á akandi gróðurhúsi með lifandi blómum.
Keppnin mun fara fram á laugardeginum og verður tímasetning auglýst síðar.



