Humarhátíð Fréttir

Flamenco

Spænskt kvöld í Sindrabæ - 29.06.2006 Humarhátíð Fréttir

Kvennakór Hornafjarðar er með eitt af þeim atriðum sem ríða á vaðið á Humarhátíðinni og verður það spænskt kvöld í Sindrabæ og hefst það í kvöld kl.19:30. Eins og nafnið gefur til kynna þá verður kvöldið með spænsku yfirbragði og verður maturinn og drykkir sem þar verður á borð borið með spænskum hætti. Kvennakórskonur kalla kokkinn sinn José Banderas og segja þær hann einn þann fremsta í heimi í spænskri matargerð. Það verður ekki bara matur og drykkur sem verður í boði því kvennakórskonur bjóða einnig upp á skemmtiatriði og hefur heyrst úr herbúðum þeirra að þar munu m.a. verða sýndir flamenco dansar. Lesa meira
 
Tvær á Humarhátíð

Humarhátíðin verður formlega sett föstudaginn 30. júní - 22.06.2006 Humarhátíð Fréttir

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni að hin árvissa Humarhátíð okkar Hornfirðinga er að nálgast. Hátíðin verður formlega sett föstudaginn 30. júní á hátíðarsvæðinu okkar við höfnina. Að venju verða þó einhver atriði á fimmtudeginum áður en hátíðin er formlega sett. Sú venja hefur skapast undanfarin ár að mikið er lagt upp úr að fjölskyldudagskrá sé í hávegum höfð á hátíðinni. Hátíðin í ár verður engin undantekning frá því. Hoppukastalar verða fyrir börnin, kassaklifur, skemmtidagskrá á hafnarsvæðinu auk margs annars sem verður á boðstólum fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveitin Á móti Sól mun halda uppi stemningunni á hafnarsvæðinu og hún mun líka spila á stórdansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Í ár mun Humarhátíðarnefnd ekki standa fyrir neinum hverfahátíðum en þess í stað mun skrúðganga leggja af stað frá íþróttahúsinu kl. 20:00 á föstudagskvöldinu. Þó ekki verði um neinar formlegar hverfahátíðir að ræða að þessu sinni hvetur Humarhátíðarnefnd fólk að sjálfsögðu til þess að hittast í sínum hverfum, gera sér glaðan dag og fjölmenna í skrúðgönguna. Lesa meira
 
Kassabílarall 2005

Skráning hafin í kassabílarallið - 15.06.2006 Humarhátíð Fréttir

Landsbankinn á Höfn er nú byrjaður að skrá þátttakendur í kassabílarallið sem verður haldið á Humarhátíðinni. Þeir sem skrá sig hjá Landsbankanum fá límmiða, skráningarmiða og reglur. Á síðustu humarhátíð tóku 13 bílar þátt í keppninni og 19 árið á undan. Að sögn Sigríðar Guðbjargar Garðarsdóttir hjá Landsbankanum þá er stefnt að því að enn fleiri taki þátt í keppninni í ár og hvetur hún pabba, mömmur og alla sem geta vettlingi valdið að byrja að smíða. Sigurvegarar í síðustu keppni voru Kristófer Hansson og Kristinn A Lúðvíksson með tímann 19,79 sek., önnur verðlaun hlutu Hannes Halldórsson og Eggert H Þórhallsson og þriðju verðlaun hlutu Þorgils Snorrason og Jón Páll Sveinsson með tímann 20.20 sek. Farandbikar fyrir flottasta bílinn hlutu Jón Bjarni Sindrason og Kolbrún Lilja Skúladóttir á Jöklajeppa-bíl, settur saman úr tveim hjólbörum. Farandbikar fyrir frumlegasta bílinn hlutu systkinin Hákon Logi Stefánsson og Sædís Harpa Stefánsdóttir á akandi gróðurhúsi með lifandi blómum. Lesa meira
 
Stemning_a_Humarhatid_2003

Styttist í Humarhátíð - 14.06.2006 Humarhátíð Fréttir

Eins og allir vita þá er farið að styttast mjög í hina árvissu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Það er alltaf viss tilhlökkun sem fylgir því að fara á Humarhátíð. Þetta ár líkt og undanfarin ár er stefnt að því að hafa Humarhátíðina eins fjölskylduvæna og hægt er þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Að þessu sinni fer hátíðin fram dagana 30. júní – 2. júlí. Hátíðarsvæðið okkar verður eins og undanfarin ár á bryggjunni. Þar verður skemmtidagskrá á föstudagskvöldinu, á laugardaginn og á laugardagskvöldinu. Stórdansleikur verður síðan að venju haldinn í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið. |nl|Það er von okkar að Hornfirðingar fjölmenni á hátíðina sem endranær og hjálpi eins og alltaf mikið við undirbúninginn. Það er mikil vinna að standa að hátíð sem þessari og því þurfa margar hendur að koma að verkinu svo vel takist til. Lesa meira
 

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica