Humarhátíð Fréttir
Undirbúningur fyrir Humarhátíð kominn í fullan gang
Humarhátíðarnefnd hefur komið saman um nokkurn tíma og er allt komið á fullan skrið enda styttist í hátíðina sem verður haldin helgina 30. júní til 2. júlí. Verið er að vinna í því að fá eina af vinsælli hljómsveitum landsins til þess að skemmta á hátíðinni. Aðrir skemmtikraftar eru að stimpla sig inn hver af öðrum því margir vilja koma á hátíðina. Áhersla er lögð á að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi þessa helgi og margir nýir dagskrárliðir ásamt þeim föstu verða til skemmtunar. Fjölskyldan verður höfð í fyrirrúmi, leikir, söngur, gleði og gaman alla hátíðina.
Þeir aðilar sem standa að humarhátíðinni þetta árið eru Knattspyrnudeild Sindra, Kvennakór Hornafjarðar og Björgunarfélag Hornafjarðar.




