Humarhátíð Fréttir
Vefmyndavélin kominn á sinn stað
Nú er vefmyndavélin komin í gagnið fyrir Humarhátíðina fyrir þá sem vilja fylgjast með því sem fram fer á hátíðarsvæðinu í beinni útsendingu. Á humarhátíðinni í fyrra þá skiptu heimsóknir á vefvélina tugum þúsunda og sannaði vefvélin notkunargildi sitt. Það var ekki óalgengt að gestir hátíðarinnar væru í GSM samandi við vini og ættingja bæði hérlendis og erlendis beint fyrir framan vélina og þá bæði með mynd og hljóð. Vefmyndavélin sem er staðsett á Hafnarvoginni vísar á Pakkhúsið með yfirsýn yfir Pakkhúsið, Heinina og göngusvæðið milli Pakkhússins og Hafnarvogarinnar.
Þeir sem vilja taka myndir af því sem fram fer frá vélinni geta gert það með því að velja ?Capture?, hægrismella og "Save Picture As..", gefa myndinni nafn og "OK".
Sjá vefmyndavél




