Humarhátíð Fréttir
Ekki skal vera með neina svartsýni á veðrið
Þó dálítið sé blautt hér á Hornafirði núna er undirbúningur fyrir humarhátíðina í fullum gangi. Krakkarnir í vinnuskólanum eru á fullu við að slá og raka og fegra bæinn, byrjað er að flytja gáma á hátíðarsvæðið við höfnina, vefmyndavélarnar komnar á sinn stað og eins og á góðum heimilum er allt tilbúið til að taka á móti þeim sem koma vilja á humarhátíðina. Ekki skal vera með neina svartsýni á veðrið því samkvæmt upplýsingum Hrafns Guðmundssonar veðurfræðings á veðurútliti fyrir hátíðina mun verða einhver væta í fyrramálið en upp úr hádeginu fer að stytta upp og rofa til og útlit á góðu veðri seinni part dagsins. Á laugardag spáir Hrafn mjög góðu hátíðarveðri, hægri suðlægri átt, gæti orðið smá raki um morguninn þó ekkert sem skiptir máli og hiti 12-14°.
Ekki lítur út fyrir að viðri til heyskapar við Byggðarsafnið á sunnudaginn því um eða fyrir hádegi mun kröpp lægð valda hvassri norðaustan átt með rigningu. Á mánudag verður komið hæglætisveður með smá skúrum. Hvað sem veðri og spám viðkemur er aðalatriðið að hafa hátíðarskapið í góðu lagi.




