Humarhátíð Fréttir
Styttist í Humarhátíð
Nú eru aðeins nokkrir dagar í það að Humarhátíð hefjist og spennan og eftirvæntingin magnast í hugum fólks. Undirbúningsnefndin vinnur nú hörðum höndum að lokaskipulagningu hátíðarinnar og það er svo sannarlega að mörgu að hyggja. Í þessari viku munu starfsmenn hátíðarinnar ganga í hús og selja armband Humarhátíðarinnar, en það veitir gestum humarhátíðarinnar aðgang að öllum helstu skemmtunum á hátíðarsvæðinu ef frá er skilinn stórdansleikurinn í íþróttahúsinu með Skítamóral á laugardagskvöldinu. Það er von nefndarinnar að fólk taki vel á móti sölufólkinu á næstu dögum því eins og allir vita þá kostar svona hátíð mikla peninga og vinnu og því er mikilvægt að vel takist til.
Að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar formanns humarhátíðarnefndarinnar þá er fólki bent á að fylgjast vel með dagskránni á heimasíðunni www.humar.is á næstu vikuna. Verið er að bæta atriðum inn í dagsrána allt fram á síðustu stundu og tímasetningar geta breyst. Notum nú tímann sem til stefnu er til þess að búa til magnaða Humarhátíðarstemningu. Sjáumst eldhress á Humarhátíð 2005.




