Humarhátíð Fréttir
Undirbúningur humarhátíðar í fullum gangi
Humarhátíðarnefnd vinnur hörðum höndum að því þessa dagana að leggja lokahönd á undirbúning Humarhátíðarinnar sem haldin verður 1. ? 3. júlí. Að hátíðinni standa að þessu sinni Björgunarsveit Hornafjarðar, Kvennakór Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Mikil metnaður hefur verið lagður í dagskrána að þessu sinni sem endranær og að því stefnt að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðardögunum. Hljómsveitin landskunna, Skítamórall heldur stórdansleik í íþróttahúsinu, golfmót verður haldið, hljómsveitin Kusk skemmtir í Pakkhúsi, boðið verður upp á leiktæki við Ásgarð svo fátt eitt sé nefnt. Hverfahátíðirnar skipa mikilvægan sess í hugum margra Humarhátíðargesta og varla hægt að hugsa sér að Humarhátíð hefjist án hverfahátíða. Enn á eftir að finna hverfastjóra fyrir Miðbæ og Sílavík og er hér með auglýst eftir þeim.
Að lokum vill Humarhátíðarnefnd koma því á framfæri að hún hefur mikinn hug á því að fá unglingahljómsveitir staðarins til að koma fram á hátíðarsvæðinu. Hér með er auglýst eftir áhugasömum hljómsveitum. Ef fólk hefur einhverjar spurningar eða ábendingar til nefndarinnar er hægt að koma þeim á framfæri í gegnum tölvupóst á netfangið nefndin@humar.is. Einnig hvetjum við fólk til þess að fylgjast með gangi mála á hér á heimasíðunni humar.is.




