Humarhátíð Fréttir

Hornafjarðarhöfn 30.06.2005 kl.13:45

Ekki skal vera með neina svartsýni á veðrið - 30.06.2005 Humarhátíð Fréttir

Þó dálítið sé blautt hér á Hornafirði núna er undirbúningur fyrir humarhátíðina í fullum gangi. Krakkarnir í vinnuskólanum eru á fullu við að slá og raka og fegra bæinn, byrjað er að flytja gáma á hátíðarsvæðið við höfnina, vefmyndavélarnar komnar á sinn stað og eins og á góðum heimilum er allt tilbúið til að taka á móti þeim sem koma vilja á humarhátíðina. Ekki skal vera með neina svartsýni á veðrið því samkvæmt upplýsingum Hrafns Guðmundssonar veðurfræðings á veðurútliti fyrir hátíðina mun verða einhver væta í fyrramálið en upp úr hádeginu fer að stytta upp og rofa til og útlit á góðu veðri seinni part dagsins. Á laugardag spáir Hrafn mjög góðu hátíðarveðri, hægri suðlægri átt, gæti orðið smá raki um morguninn þó ekkert sem skiptir máli og hiti 12-14°. Lesa meira
 
Frá hátíðarhöldunum á laugardag

Styttist í Humarhátíð - 27.06.2005 Humarhátíð Fréttir

Nú eru aðeins nokkrir dagar í það að Humarhátíð hefjist og spennan og eftirvæntingin magnast í hugum fólks. Undirbúningsnefndin vinnur nú hörðum höndum að lokaskipulagningu hátíðarinnar og það er svo sannarlega að mörgu að hyggja. Í þessari viku munu starfsmenn hátíðarinnar ganga í hús og selja armband Humarhátíðarinnar, en það veitir gestum humarhátíðarinnar aðgang að öllum helstu skemmtunum á hátíðarsvæðinu ef frá er skilinn stórdansleikurinn í íþróttahúsinu með Skítamóral á laugardagskvöldinu. Það er von nefndarinnar að fólk taki vel á móti sölufólkinu á næstu dögum því eins og allir vita þá kostar svona hátíð mikla peninga og vinnu og því er mikilvægt að vel takist til. Lesa meira
 
Humarhatidarnefnd 2005

Undirbúningur humarhátíðar í fullum gangi - 09.06.2005 Humarhátíð Fréttir

Humarhátíðarnefnd vinnur hörðum höndum að því þessa dagana að leggja lokahönd á undirbúning Humarhátíðarinnar sem haldin verður 1. – 3. júlí. Að hátíðinni standa að þessu sinni Björgunarsveit Hornafjarðar, Kvennakór Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Mikil metnaður hefur verið lagður í dagskrána að þessu sinni sem endranær og að því stefnt að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðardögunum. Hljómsveitin landskunna, Skítamórall heldur stórdansleik í íþróttahúsinu, golfmót verður haldið, hljómsveitin Kusk skemmtir í Pakkhúsi, boðið verður upp á leiktæki við Ásgarð svo fátt eitt sé nefnt. Hverfahátíðirnar skipa mikilvægan sess í hugum margra Humarhátíðargesta og varla hægt að hugsa sér að Humarhátíð hefjist án hverfahátíða. Enn á eftir að finna hverfastjóra fyrir Miðbæ og Sílavík og er hér með auglýst eftir þeim. Lesa meira
 

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica