Humarhátíð Fréttir

Frá hátíðarhöldunum á laugardag
Frá hátíðarhöldunum á laugardag
Mynd 1 af 2
1 2

04.07.2004

Í lok Humarhátíðar 2004

“Ein af þeim bestu” voru orð eins aðstandenda Humarhátíðarinnar og er víst að hann á sér nokkuð marga skoðanabræður. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina sem nú var haldin í 12 skiptið. Hátíðin í ár einkenndist af fjölskyldu stemningu og nálgaðist sitt upphaflega markmið sem er að vera fjölskylduhátíð fremur en unglingasamkoma. Veður var hið besta yfir hátíðina, stillt og milt alla dagana og hitastig um 10 gráður. Áberandi var hversu hreinn og snyrtilegur bærinn var á meðan á hátíðarhöldunum stóð og þegar þau voru búin og má því þakka hreinsunarliðinu sem var að störfum allan tímann.

Þeir aðilar sem sjá um humarhátíðina eru félagasamtök á Höfn sem eru félagar í Kiwanis, Björgunarfélagi Hornafjarðar og Ungmennafélaginu Sindra og er víst að þeim hefur færst þetta verkefni mjög vel úr hendi síðust árin. Dagskrá hátíðarinnar var vel undirbúin, fjölbreitt með ýmsum nýjungum auk þeirra atriða sem eru búin að festa sig í sessi á humarhátíð, henni lauk að venju með flottum varðeldi og flugeldasýningu við Ásgarð . Nú er bara að fara telja dagana til næstu humarhátíðar.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica