Humarhátíð Fréttir

Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna 2003
Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna 2003
Mynd 1 af 2
1 2

01.07.2004

Heimsmeistaramótið um helgina

Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna fer fram að venju í íþróttahúsinu á öðrum degi Humarhátíðar og byrjar það kl. 12:00. Albert Eymundsson mótsstjóri og frumkvöðull Hornafjarðarmanna hefur veg og vanda með mótinu eins og undanfarin ár. Á síðustu Humarhátíð var það Birgir Björnsson sem hlaut Hunarskálina og titillinn Heimsmeistari í Hornafjarðarmanna 2003. Búist er við harðri keppni og stóra spurningin hver fær titilinn í ár. Reiknað er með að það verði spilað á 40-50 borðum. Í fyrra voru það 129 manns sem tóku þátt í mótinu og mörg ný andlit.

Þeir sem vilja kynna sér spilareglurnar geta skoðað þær á heimasíðu Hornafjarðarmanna. Síðan er bara að mæta í íþróttahúsið á laugardaginn og taka þátt í mótinu.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica