Humarhátíð Fréttir

Sigrún Inga og Eva Lind starfsmenn vinnuskólans að útbúa sólartáknið í Fiskhólinn
Sigrún Inga og Eva Lind starfsmenn vinnuskólans að útbúa sólartáknið í Fiskhólinn
Sigrún Inga og Eva Lind starfsmenn vinnuskólans að útbúa sólartáknið í Fiskhólinn
Mynd 1 af 2
1 2

30.06.2004

Undirbúningur fyrir Humarhátíðina gengur vel

Nú styttist í Humarhátíðina og allt er að smella saman, byrjað að setja upp humarmerkin sem hafa skreitt ljósastauranna í útbænum og niður á hátíðarsvæðinu við bryggjuna. Hverfahátíðarnefndir eru búnar að boða til fundar og nokkrar þegar byrjaðrar að undirbúa skemmtiatriðin. Gengið hefur verið í hús og armbönd seld þeim sem ætla á hátíðina. Armböndin gilda fyrir alla viðburði á hátíðinni nema á dansleikinn sem verður í Íþróttahúsinu laugardagskvöldið. Þeir sem ekki hafa fengið heimsókn frá sölufólki geta keypt armböndin í Martölvunni í Miðbæ eða í björgunarsveitarbílnum sem verður staðsettur við Pakkhúsið. Ath best er að vera búinn að tryggja sér armbönd áður en haldið er á hátíðarsvæðið.

Samkvæmt spánni þá verður austlæg átt, 10-15 m/s og súld eða rigning með köflum og hið besta veður yfir Humarhátíðarhelgina.
Einhverjar smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á dagskránni frá því að hún fór í prentun og er hún dagrétt hér á vefnum.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica