Humarhátíð Fréttir
Skráning hafin í kassabílarall
Nú er byrjað að skrá þátttakendur í kassabílarallið sem er orðinn fastur hluti af Humarhátíðinni. Það er Landsbankinn á Höfn sem stendur fyrir rallinu eins og venjulega. Keppnin verður á laugardeginum eftir hádegi. Í fyrra voru það 19 krakkar sem tóku þátt í keppninni. Að sögn Sigurborgar Helgadóttur hjá Landsbankanum þá eru það ekki bara strákar sem taka þátt, stelpurnar hafa sótt í sig veðrið. Í rallinu er keppt um hverjir eiga hraðskreiðustu og flottustu bílana. Allir þátttakendur fá verðlaun en fyrir flottasta bílinn er veittur farandbikar.
Skráningin fer fram í Landsbankanum annað hvort í síma 478 1800 eða bara mæta í bankann og skrá sig.




