Humarhátíð Fréttir

Flottir í skotapylsum fyrir framan sölugámana
Flottir í skotapylsum fyrir framan sölugámana
Mynd 1 af 2
1 2

16.06.2004

Búið að fylla alla sölugámana

Eins og undanfarin ár hefur verið mikil ásókn í aðstöðu í sölugámum á hátíðarsvæðinu á Humarhátíðinni þar sem gestir og gangandi hafa getað keypt ýmislegt skemmtilegt. Þar hefur m.a. verið að finna humar, sælgæti, ferskan fisk, fatnað, harðfisk, fatnaður, minjagripi, kakó, kaffi ýmis afþreyingartól. Að þessu sinni þá er ekki fleiri pláss á lausu og fengu færri en vildu. Stefnt er að því á næstu humarhátíð að auka svæðið sem verður fyrir sölugámana og anna með því eftirspurn. Við gámana bætist síðan Sindratjaldið en þar rúmast 6 söluaðilar.

Á hverju ári bætist alltaf einhverjir nýir aðilar við sem vilja kynna og selja sína vöru á Humarhátíðinni, nú er bara að bíða spenntur eftir hvað verður í boði á sölusvæðinu þetta árið.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica