Humarhátíð Fréttir

Á Humarhátíð
Á Humarhátíð
Mynd 1 af 2
1 2

05.06.2004

Humarhátíð á næstu grösum

Flestir fá fiðring í magann af tilhlökkun þegar minnst er á Humarhátíðina og eykst hann þegar nær dregur hátíðinni. Dagskráin er nú fullmótuð og inniheldur eins og undanfarin ár eitthvað skemmtilegt fyrir alla aldurshópa. Föstu liðirnir eru á sínum stað svo sem hverfahátíðirnar, kúadellulottóið, heimsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna, útimarkaðurinn, burnoutkeppnin svo eitthvað sé nefnt. Nýir skemmtikraftar og hljómsveitir sem verða með okkur þetta ár og svo er það allur humarinn sem hægt er að komast í. Sjá nánar dagskrá.

Vefur humarhátíðarinnar humar.is er nú orðinn hluti af Samfélagsvef Hornafjarðar og munu fréttir af viðburðum og efni hátíðarinnar birtast þar.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica