Humarhátíð Fréttir

Sigrún Inga og Eva Lind starfsmenn vinnuskólans að útbúa sólartáknið í Fiskhólinn

Undirbúningur fyrir Humarhátíðina gengur vel - 30.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Nú styttist í Humarhátíðina og allt er að smella saman, byrjað að setja upp humarmerkin sem hafa skreitt ljósastauranna í útbænum og niður á hátíðarsvæðinu við bryggjuna. Hverfahátíðarnefndir eru búnar að boða til fundar og nokkrar þegar byrjaðrar að undirbúa skemmtiatriðin. Gengið hefur verið í hús og armbönd seld þeim sem ætla á humarhátíðina. Armböndin gilda fyrir alla viðburði á hátíðinni nema á dansleikinn sem verður í Íþróttahúsinu laugardagskvöldið. Þeir sem ekki hafa fengið heimsókn frá sölufólki geta keypt armböndin í Martölvunni í Miðbæ eða í björgunarsveitarbílnum sem verður staðsettur við Pakkhúsið. Ath best er að vera búinn að tryggja sér armbönd áður en haldið er á hátíðarsvæðið. Lesa meira
 
Hópurinn sem ætlar að keppa á Humarhátíð ásamt Hauki og Jóhanni

Nokkur pláss í söngvakeppnina - 28.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Fyrsta æfing hjá krökkunum fyrir söngvakeppnina sem verður á Humarhátíðinni á laugardeginum kl.14 fór fram um helgina og mættu 9 krakkar og verða þau samtals með 6 atriði. Eins og á síðustu Humarhátíð þá er gert ráð fyrir 10 söngatriðum og því er enn pláss fyrir nokkra krakka sem vilja koma fram. Æfingarnar fara fram í Tónskólanum í Sindrabæ og þeir sem aðstoða krakkana er ekki af verri endanum, en það eru félagarnir Haukur Þorvalds og Jóhann Morávek. Á síðustu Humarhátíð vakti söngvakeppnin mikla athygli og komu þar margir krakkar fram sem eflaust eiga eftir að láta að sé kveða í tónlistarbransanum í framtíðinni. Lesa meira
 
Gjess - Sól á rauðum kjól

Á Humarhátíð - Sól á rauðum kjól - 28.06.2004 Menning

Myndverkamaðurinn „gjess“ er eitt af birtingarformum Guðjóns Sigvaldasonar leikstjóra, en hann er Hornfirðingum kunnur fyrir uppsetningar sínar á ýmsum leikverkum hér á Höfn. Það eru þó ekki allir sem vissu að myndlist allskonar er einnig eitt af því sem hann tekur sér fyrir hendur, þó að vísu mætti ráða í það t.d með leikmyndinni á leikverkinu „Stræti“ sem sett var upp í Mánagarði 1996, þá hefur líka mátt sjá hugmyndavinnu hans í útfærslu búninga og ýmiskonar gerva á fyrri Humarhátíðum, en hann stjórnaði fríðum flokki Hornfirðinga í götuleikhúsi bæjarins hér á árum áður. Lesa meira
 
Þátttakendur í kassabílaralli Landsbankans

Skráning hafin í kassabílarall - 25.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Nú er byrjað að skrá þátttakendur í kassabílarallið sem er orðinn fastur hluti af Humarhátíðinni. Það er Landsbankinn á Höfn sem stendur fyrir rallinu eins og venjulega. Keppnin verður á laugardeginum eftir hádegi. Í fyrra voru það 19 krakkar sem tóku þátt í keppninni. Að sögn Sigurborgar Helgadóttur hjá Landsbankanum þá eru það ekki bara strákar sem taka þátt, stelpurnar hafa líka sótt í sig veðrið. Í rallinu er keppt um hverjir eiga hraðskreiðustu og flottustu bílana. Allir þátttakendur fá verðlaun en fyrir flottasta bílinn er veittur farandbikar. Lesa meira
 
Árni Johnsen á Humarhátíð 2004

Árni Johnsen skemmtir á Humarhátíð - 17.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Bryggjusöngur mun hljóma þetta árið á Humarhátíð því vísnasöngvarinn og fyrrverandi þingmaðurinn Árni Johnsen mun skemmta gestum hátíðarinnar á föstudagskvöldið. Valin lög munu hljóma úr 100 laga prógrammi sem Árni hefur sett saman. Árni segir að þetta sé mjög góð upphitun fyrir þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og er reynsla hans af Hornfirðingum sé sú að þeir erum mjög fljótir að taka með sér lagið. Árni sagði í samtali við humar.is frá eftirminnilegri ferð hingað austur þegar að hann var á ferð með samgöngunefnd þegar hún heimsóttir Hornafjörð og Djúpavog. Kom nefndin við á Hótel Vatnajökli um það leiti sem opna átti hótelið sem var eftir tvo daga og ætlaði nefndin að hitta Skarphéðin Larsen hótelhaldara en fékk þær fréttir að hann hafi verið fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur og því ekki getað tekið á móti nefndinni. Lesa meira
 
Flottir í skotapylsum fyrir framan sölugámana

Búið að fylla alla sölugámana - 16.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Eins og undanfarin ár hefur verið mikil ásókn í aðstöðu í sölugámum á hátíðarsvæðinu á Humarhátíðinni þar sem gestir og gangandi hafa getað keypt ýmislegt skemmtilegt. Þar hefur m.a. verið að finna humar, sælgæti, ferskan fisk, fatnað, harðfisk, fatnaður, minjagripi, kakó, kaffi ýmis afþreyingartól. Að þessu sinni þá er ekki fleiri pláss á lausu og fengu færri en vildu. Stefnt er að því á næstu humarhátíð að auka svæðið sem verður fyrir sölugámana og anna með því eftirspurn. Við gámana bætist síðan Sindratjaldið en þar rúmast 6 söluaðilar. Lesa meira
 
Á Humarhátíð

Humarhátíð á næstu grösum - 05.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Flestir fá fiðring í magann af tilhlökkun þegar minnst er á Humarhátíðina og eykst hann þegar nær dregur hátíðinni. Dagskráin er nú fullmótuð og inniheldur eins og undanfarin ár eitthvað skemmtilegt fyrir alla aldurshópa. Föstu liðirnir eru á sínum stað svo sem hverfahátíðirnar, kúadellulottóið, heimsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna, útimarkaðurinn, burnoutkeppnin svo eitthvað sé nefnt. Nýir skemmtikraftar og hljómsveitir sem verða með okkur þetta ár og svo er það allur humarinn sem hægt er að komast í. Sjá nánar dagskrá. Lesa meira
 

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica