Humarhátíð Fréttir
Undirbúningur fyrir Humarhátíð gengur vel
Undirbúningur fyrir Humarhátíð er komin á fullt skrið en hátíðin verður haldin dagana 2. ? 4. júlí. Eins og undanfarin ár er undirbúningurinn í höndum Björgunarfélags Hornafjarðar, Kiwanisklúbbsins Ós og Knattspyrnudeildar Sindra. Að sögn Gests Halldórssonar sem á sæti í undirbúningsnefndinni er mikil vinna búinn að vera í gangi undanfarið og búið að ráða bæði hljómsveit og kynnir. Hljómsveit Humarhátíðar þetta árið verður ?Á móti sól? og mun hljómsveitin leika á útidansleik á föstudagskvöldið og í íþróttahúsinu á laugardaginn. Kynnir hátíðarinnar verður hinn eini og sanni Felix Bergsson sem verður ekki í vandræðum með að gleðja unga sem aldna.
Hátíðin sjálf muna verða með svipuðu sniði og undanfarin ár enda hefur fólk almennt verið mjög ánægt með dagskrána og þá afþreyingu sem í boði hefur verið.
Stefnt er að því að hafa unglingadansleik í Sindrabæ á föstudagskvöldið og gengið hefur verið frá samningi vegna leiktækjanna sem verið hafa á hátíðarsvæðinu undanfarin ár.
Stærsti samningur sem gerður hefur verið fyrir komandi Humarhátíð er þó við veðurguðina en þeir hafa lofað sumarblíðu meðan á hátíðinni stendur.



