Heilbrigðisstofnanir
Í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustu á Íslandi og skiptingu landsins heilbrigðisumdæmi sem nánar er kveðið á um í reglugerð nr. 785/2007 um heilbrigðisumdæmi, með (1.) breytingu nr. 765/2008 og (2.) breytingu nr. 1084/2008.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu er áhersla lögð á að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og eftirlit með henni. Einnig er lögð áhersla á að almenn heilbrigðisþjónusta sé veitt í heimabyggð og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Þrátt fyrir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi skulu sjúklingar „jafnan eiga rétt á að leita til þeirrar heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar sem þeir eiga auðveldast með að ná til hverju sinni“.
Heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi eiga skv. lögunum að hafa með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði og skal í hverju heilbrigðisumdæmi starfrækt heilbrigðisstofnun eða heilbrigðisstofnanir.
Umdæmissjúkrahús skulu veita almenna sjúkrahúsþjónustu, m.a. á göngu- og dagdeildum eftir því sem við á. Í tengslum við þau skulu vera hjúkrunarrými og fæðingarhjálp að uppfylltum faglegum kröfum og önnur heilbrigðisþjónusta sem sjúkrahúsinu er falið að veita eða samið hefur verið um. Á heilbrigðisstofnunum sem veita bæði almenna sjúkrahúsþjónustu og heilsugæsluþjónustu skal starfsemi samtvinnuð og starfsmenn ráðnir til að sinna báðum þáttum eftir því sem við á.
Sérhæfð heilbrigðisþjónusta er veitt á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, sérhæfðum heilbrigðisstofnunum og öðrum heilbrigðisstofnunum.
Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús og Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og sérhæft sjúkrahús.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


