Við HSSA starfar 1 sjúkraþjálfari í 30% stöðu og hefur verið síðan 2004. Fram að því var sjúkraþjálfun sinnt í verktakastarfi eftir þörfum. Sjúkraþjálfari starfar á hjúkrunardeildinni þar sem hann sinnir vistmönnum ásamt því að sinna þeim einstaklingum sem leggjast inn í styttri tíma í einu. Sjúkraþjálfunaraðstaða er vel tækjum búin en er staðsett í öðru húsnæði gegnt hjúkrunardeildinni. Sjúkraþjálfun fer því fram að miklu leiti á hjúkrunardeildinni ásamt því að nýta sjúkraþjálfunaraðstöðuna.
Sjúkraþjálfi HSSA er Einar Smári Þorsteinsson. netfang: einarsmari@hssa.is 
Markmið sjúkraþjálfunar á HSSA:
· Veita skjólstæðingum sjúkraþjálfunar viðeigandi þjálfun, fræðslu og ráðgjöf með það að markmiði að auka eða viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri getu þeirra á meðan legu þeirra stendur yfir.
· Að auka eða viðhalda færni og hreyfigetu skjólstæðinga okkar og auðvelda þeim að takast á við hið daglega líf á stofnuninni ásamt því að gera umönnun léttari.
· Endurhæfa þá skjólstæðinga sem leggjast inn eftir aðgerðir og í hvíldarinnlagnir með því að markmiðið að þeir geti útskrifast heim í sitt fyrra umhverfi.
· Veita starfsmönnum HSSA fræðslu og ráðgjöf í vinnuvistfræði.
Leiðir að markmiðum:
Einstaklingsþjálfun:
· Skoðun og prófanir
· Færnisþjálfun
· Styrktarþjálfun
· Úthaldsþjálfun
· Hin ýmsu önnur meðferðarúrræði ss.
o Fræðsla og ráðgjöf
o Nudd, teygjur, liðlosun, tog, laser, bylgjumeðferð, rafmagnsmeðferð, heitir og kaldir bakstrar.
o Metur þörf fyrir hjálpartæki og kennir notkun þeirra.
o Heimilisathugun.
o Metur þörf á sjúkraþjálfun eftir útskrift.
Hópþjálfun
· Leikfimi á hjúkrunardeild 2 svar í viku.
· Hópþjálfun í tækjasal ef þörf er á.
Áhugaverðar síður:
Félag Íslenskra sjúkraþjálfara
Námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
Tryggingastofnun Ríkisins
Lýðheilsustöð
Landlæknir
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


