Hjúkrunar og sjúkrasvið
Hjúkrunardeild
Hjúkrunardeild
Mynd 3 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Hjúkrunar og sjúkrasvið

Hjúkrunar- og sjúkrasvið skiptist í tvær legudeildir.

Hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild.

 

Hjúkrunar- og sjúkradeildin fluttist í nýbyggingu við Víkurbraut 29 árið 1996. Áður var  hjúkrunar- og dvalarheimilið Skjólgarður í viðlagasjóðshúsum að Hvannabraut 1-3, þar sem í dag er rekið gistiheimilið Hvammur.

 

Bygging hjúkrunarheimilisins eins og það er oft kallað var mikil breyting fyrir starfsemina og aðstaða öll til fyrirmyndar miðað við þann tíma.

 

Fæðingardeildin tilheyrir sjúkrasviði, en fæðingaraðstaðan er staðsett á heilsugæslunni. Sængurkonum stendur til boða að jafna sig eftir barnsburð á hjúkrunar- og sjúkradeild.

 

Dvalarheimilið Skjólgarður var rekið á Hvannabraut til ársins 2006. Dvalarrými þar voru 14 en nýting þeirra hafði hægt og sígandi minnkað mikið.

 

Í mars 2006 fluttist starfsemin svo í núverandi húsnæði við Víkurbraut 26 – í Mjallhvíti. Þar sem þrjár íbúðir fyrir aldraða voru sameinaðar í dvalardeild. Húsnæði deildarinnar er í eigu sveitarfélagsins en HSSA leigir það undir starfsemina. Í dag eru sex dvalrarrými á HSSA.

Hér má sjá lög og reglugerðir um málefni aldraðra.

Óski einstaklingur eftir plássi á hjúkrunar- eða dvalardeild þarf að fylla út umsóknarblað um færni- og heilsumat sem finna má HÉR

 

Ásgerður GylfadóttirHjúkrunarstjóri á hjúkrunar- og sjúkrasviði er Ásgerður Kristín Gylfadóttir Bs. hjúkrunarfræðingur og diploma í heilsugæslu frá HÍ. Netfang: asgerdur@hssa.is

                    

 


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica