Upplýsingar fyrir inniliggjandi
Séra Sigurður í heimsókn
Séra Sigurður í heimsókn

Gott að vita

Við biðjum skjólstæðinga okkar og aðstandendur þeirra vinsamlega að ræða ekki um sjúkdóma og meðferð annarra og munið að allt starfsfólk hefur skrifað undir þagnarskyldu.

 

Við innlögn á deild


Skal hafa með sér slopp, inniskó , rakáhöld, tannbursta, tannkrem, greiðu og eða aðrar snyrtivörur sem eru nauðsynlegar.

Náttföt, nærföt og léttan klæðnað til að vera í á daginn sé viðkomandi ekki rúmfastur.

Lyf
Á meðan sjúklingur er inniliggjandi á hann aðeins að nota lyf í samráði við lækna deildarinnar. Lyf og lyfjakort skal því afhenda lækni eða hjúkrunarfræðingi sem hann fær síðan aftur við brottför svo og ráðleggingar um áframhaldandi meðferð.

Annað
Deildin getur ekki ábyrgst fjármuni né verðmæti sem fólk kemur með. Viðkomandi eru  hvattir til að setja verðmæti í geymslu í læstum skáp hjá hjúkrunarfræðingum.

Útskrift
Við útskrift er farið yfir lyf og lyfjakort viðkomandi og athugað hvort viðkomandi þurfi heimahjúkrun eða heimaþjónustu.


Matartímar

  • Morgunmatur        frá kl. 8:30
  • Hádegismatur       kl. 11:30
  • Kaffi                     kl. 14:30
  • Kvöldmatur           kl. 18
  • Kvöldkaffi              eftir kl. 20:30 

 

Reykingar
Sjúklingum sem reykja er vinsamlegast bent á að æskilegt er að draga sem mest úr reykingum og þeim boðin hjálparmeðöl s.s. nikótínplástur og tyggigúmmí á meðan á dvöl stendur.
Heimilisfólki og sjúklingum er heimilt að reykja í bakgarði.

Samkvæmt lögum er gestum og starfsfólki með öllu óheimilt að reykja innandyra eða á lóð HSSA. 

Kvennakórinn í heimsóknSameiginlegt rými á hjúkrunar og sjúkradeild. 
Sameiginleg setustofa og borðstofa er nýtt sem aðstaða til þjálfunar, afþreyingar og samveru.  Einnig er salurinn nýttur til helgihalds, hópstarfs tengdu félagsstarfi og uppákomur af ýmsu tagi, eins og dansleiki, tónlistarflutning og ýmiskonar fundahöld. 

Í garðinumAðstaða utandyra.
Úr setustofu í vestari enda er gengið út í yndislegan  garð.  Þar eru bekkir og borð sem nýtt er á góðviðrisdögum á sumrin. Heimilisfólk getur farið þar um og notið gróðurs og fallegs útsýnis.


Þjónusta 


Hafrún Gísladóttir

Hand- og fótsnyrting
Hafrún Gísladóttir snyrtifræðingur kemur reglulega og býður heimilisfólki uppá snyrtiþjónustu s.s. hand- og fótsnyrtingu sem veitt er á kostnað einstaklingsins.

 


HárgreiðslaHárgreiðsla
Hárgreiðslumeistarar koma á deildina og snyrta sína kúnna hér má sjá
Ingibjörgu Ævar Steinsdóttur setja permanet og Baldvin Guðlaugsson klippa. Hársnyrting er á kostnað einstaklingsins.

Baldvin Guðlaugsson                                                                                                             Einnig fara þeim heimilismenn sem geta og kjósa á hársnyrtistofur bæjarins.

 

Sjúkraþjálfun/ leikfimi
Tvisvar í vikur býður Einar Smári Þorsteinsson sjúkraþjálfi öllu heimilisfólki upp á leikfimitíma í stofu hjúkrunar- og sjúkradeildar.


Prestþjónusta
Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur kemur vikulega á hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Guðsþjónusta er á deildinni á stórhátíðum auk þess sem sjónvarpstenging við Hafnarkirkju gerir heimilisfólki kleift að horfa á messur og aðrar uppákomur sem fram fara í kirkjunni. Þessi tenging kom í gagnið haust 2008 og er kærkomin.

 

Þvottur
Fatnaður heimilisfólks er merktur með númeri einstaklingsins.
Allur þvottur stofnunarinnar og heimilisfólks er þveginn í Efnalaug Dóru.
Æskilegt er að þvottur heimilisfólks þoli vélarþvott. HSSA tekur ekki ábyrgð á fötum heimilisfólks.

Finna reglugerð HBR um þvott heimilisfólk og setja inn sem link.

 

 

 

 

 

 


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica