Hjúkrunar og sjúkradeild
Hjúkrunar og sjúkradeild HSSA er blönduð 28 rúma legudeild með sólahringsvakt umönnunaraðila.
Sjúkrarýmin er fjögur en þau eru nýtt fyrir einstaklinga sem liggja inni í styttri tíma s.s. bráðatilfelli, lyfjagjafir, eftirlit vegna sjúkdóms eða greiningar, sýkinga og/eða í kjölfar legu eða aðgerða á sjúkrahúsum annarstaðar á landinu.
Sængurkonum stendur til boða að jafna sig á deildinni eftir barnsburð.
Á deildinni eru tuttugu og fjögur langlegurými fyrir hjúkrunarsjúklinga. Þá eru það einstaklingar sem eru heimilisfastir á deildinni til lengri eða skemmri tíma.
Deildin skiptist í tvo hluta. Tólf rými fyrir skjólstæðinga með heilabilun. Þá er átt við ýmsa minnissjúkdóma svo sem Alzheimer o.fl. og tólf rými fyrir aðra hjúkrunarsjúklinga.
Unnið er eftir skipulagi hóphjúkrunar og hefur hver einstaklingur sinn umsjónarhjúkrunarfræðing auk tengils úr hópi starfsmanna.
Markmið hjúkrunar eru að:
· veita hjúkrun og umönnun eftir þörfum hvers og eins
· styrkja heimilisfólk til sjálfshjálpar
· auðvelda heimilisfólki að aðlagast breyttum aðstæðum
· tryggja vellíðan og öryggi heimilismanna
· standa vörð um sjálfsímynd þeirra og sjálfsvirðingu
· efla samvinnu og stuðning við fjölskyldur heimilisfólks
· stuðla að ánægjulegu ævikvöldi
Markmið læknisþjónustu HSSA eru að:
· stuðla að sem bestri líkamlegri og andlegri heilsu heimilisfólks.
· auka færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklingsins eftir leiðum læknisfræðinnar og með virkri þátttöku lækna í þverfaglegu
teymi.
RAI-mat hefur verið framkvæmt á öllum íbúum/vistmönnum frá árinu 1996. Um er að ræða mat á raunverulegum aðbúnaði íbúa á öldrunarstofnunum og eru niðurstöðurnar sendar til RAI-matsnefndar sem staðsett er í Reykjavík.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


