Félagsstarf
Nikkurnar þandar
Nikkurnar þandar
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Á HSSA er gott og öflugt félagsstarf

Fastir liðir eru t.d. upplestur og söngur haldið er þorrablót, jólasamvera og ýmsar aðrar skemmtanir.

 

Á HSSA, hjúkrunar- og sjúkradeild  starfar Þorbjörg Helgadóttir félagsliði  við félagsstarf.

Hlutverk slíkrar þjónustu á hjúkrunar- og sjúkradeild er að örva félagslegt samneyti, virkni og innihaldsríkt líf hjá heimilisfólki. Tómstundaiðja og samvera er mikilvægur þáttur fyrir heimilisfólk og mikil örvun felst í umhverfisbreytingu.

Heimilisfólk á þess einnig kost að sækja virknistarf út af heimiliseiningunni í dagvist í Ekru.


Fastir liðir á deildinni eru t.d. upplestur og söngur haldið er þorrablót, jólasamvera og ýmsar aðrar skemmtanir.

 

Heimsókn frá leikskólanum KrakkakotiGóðir gestir sækja deildina heim í viku hverri. t.d. séra. Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur sem auk þess að sinna sálgæslu og trúarlegu starfi, les bókmenntir fyrir heimilisfólk. Nemendur úr Tónskóla Hornafjarðar, leikskólunum Krakkakoti og Lönguhólum, Sigurður Hannesson skjalavörður kemur reglulega yfir veturinn og les uppúr gömlum skjölum.

Gretar-og-Fridrik-OmarAuk þess höfum við notið heimsókna hinna ýmsu listamanna sem heimsækja okkur reglulega eða koma við á leið um bæinn.

Markmið félagsstarfs er að:

·         auka virkni heimilismanna og koma í veg fyrir einangrun

·         örva félagslegt samneyti og létta lund.

Tónlistarfólk í heimsókn 

Á dvalardeild sinnir starfsfólk deildarinnar félagslega þættinum með upplestri, spilum o.fl. og heimilisfólk sækir einnig félagsstarf í Dagdvölina í Ekru.

HSSA á stórt og gott bókasafn sem nýtist heimilisfólki og starfsfólki.

 

 


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica