Fæðingadeild

Fæðing - sængurlega

 Á Höfn er löng hefð fyrir fæðingum og hefur staðurinn haldið stöðu sinni sem fæðingastaður meðan að fæðingar hafa lagst niður á smærri stöðum undanfarin ár. Nú stendur öllum hraustum konum  í eðlilegri meðgöngu til boða að fæða hér (sjá leiðbeiningar landlæknis varðandi val á fæðingarstað).

 

Árlega fæða 50-60% barnshafandi kvenna í AusturSkaftafellssýslu heima í héraði.

 

Góð fæðingaaðstaða er á heilsugæslustöðinni. Hefur hún verið veglega styrkt af líknarfélögum í sýslunni. Byggð hefur verið upp hlýleg og góð aðstaða þar sem konan og stuðningsaðilar hennar eru í rólegu og aflöppuðu umhverfi fjarri hátæknibrölti.

 

Sú verkjameðferð sem við höfum yfir að ráða er sturta og bað, nudd og slökun, nálastungur, vatnsbólur og glaðloft. Ekki má gleyma því að líðan fæðandi konu stjórnast að stórum hluta af því umhverfi og aðbúnaði sem hún og hennar aðstandendur hafa.

 

Ef verðandi foreldrar kjósa getur fæðingin farið fram í vatni eða í heimahúsi ef að það hentar betur.

 

Sængulega getur verið á hjúkrunar- og sjúkradeild þar sem vel búið herbergi bíður. Þar er sér baðherbergi og góð aðstaða fyrir móður og barn. Auk þess er konunni velkomið að hafa sína stuðningsaðila hjá sér eftir því sem hún kýs. Lengd sængurlegu á hjúkrunar- og sjúkradeild er sniðin að þörfum hverrar fjölskyldu.

 

Einnig getur konan valið að fara beint heim af fæðingardeild og fær hún þá heimaþjónustu ljósmóður eftir þörfum.

 

Áslaug Íris ValsdóttirSamfella er því í þjónustu frá mæðravernd til loka ungbarnaverndar við 18 mánaða aldur barns í umsjón Áslaugar Írisar Valsdóttur,  ljósmóður og hjúkrunarfræðings frá HÍ, netfang: aslaug@hssa.is


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica