Dvalardeild
Mjallhvít
Mjallhvít
Mynd 1 af 2
1 2

Dvalardeildin Mjallhvít

Dvalardeildin Mjallhvít er heimili með pláss fyrir sex heimilismenn.

Markmiðið er að skapa heimilislegt umhverfi  þar sem heimilismenn halda reisn sinni og virðingu. Þeir hafa í kringum sig persónulega muni s.s. eigin rúmföt, myndir og húsgögn og engir fastir heimsóknatímar eru, heldur taka heimilismenn á móti gestum þegar þeim hentar.


Vaktþjónusta er á heimilinu frá kl. átta á morgnanna til hálf ellefu á kvöldin. Öryggisþjónustan sér um vöktun heimilisins yfir nóttina.

Ýmsar upplýsingar um málefni aldraðra má finna á vef Félags- og tryggingamálaráðuneytisins

Deildarstjóri dvalardeildar er Guðlaug Björgvinsdóttir: sími: 470 8660.

Hjúkrunarstjóri er Ásgerður K. Gylfadóttir: asgerdur@hssa.is , sími: 470 8630.

 


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica