Rannsókn og röntgen
Árið 2006 voru tekin í notkun ný stafræn röntgentæki sem safnað var fyrir með framlögum frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum í samfélaginu.
Við þessar breytingar opnuðust ný tækifæri í myndgreiningu á Höfn þar sem allar myndir fara nú sjálfkrafa til yfirlestrar hjá röntgenlæknum í Dómus Medica sem er góður stuðningur við lækna stofnunarinnar.
Einnig er þetta mun betra vinnuumhverfi fyrir starfsfólk heilsugæslunnar þar sem framköllunarvökvar og annað slíkt heyra nú sögunni til.
Á rannsóknastofu HSSA eru gerðar rannsóknir á sviði blóðmeina- og sýklafræði. Þær rannsóknir sem ekki er unnt að framkvæma á HSSA eru sendar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi eða Landspítalann til frekari greiningar.
Rannsóknir eru framkvæmdar samkvæmt beiðni frá lækni og þarfnast tímapöntunar.
Starfsmaður á rannsókn og röntgen er Ragna Pétursdóttir, sjúkraliði auk hennar framkvæma hjúkrunarfræðingar, ljósmóðir og læknar rannsóknir og röntgenmyndatökur.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


