Rannsóknir og myndgreining

Rannsókn og röntgen

 

Árið 2006 voru tekin í notkun ný stafræn röntgentæki sem safnað var fyrir með framlögum frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum í samfélaginu.

Við þessar breytingar opnuðust ný tækifæri í myndgreiningu á Höfn þar sem allar myndir fara nú sjálfkrafa til yfirlestrar hjá röntgenlæknum í Dómus Medica sem er góður stuðningur við lækna stofnunarinnar.

Einnig er þetta mun betra vinnuumhverfi fyrir starfsfólk heilsugæslunnar  þar sem framköllunarvökvar og annað slíkt heyra nú sögunni til.

Á rannsóknastofu HSSA eru gerðar rannsóknir á sviði blóðmeina- og sýklafræði. Þær rannsóknir sem ekki er unnt að framkvæma á HSSA eru sendar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi eða Landspítalann til frekari greiningar.

Rannsóknir eru framkvæmdar samkvæmt beiðni frá lækni og þarfnast tímapöntunar.

Ragna Pétursdóttir, sjúkraliði á rannsóknStarfsmaður á rannsókn og röntgen er Ragna Pétursdóttir, sjúkraliði auk hennar framkvæma hjúkrunarfræðingar, ljósmóðir og læknar rannsóknir og röntgenmyndatökur.


           


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica