Mæðravernd
Mæðravernd er á miðvikudögum frá kl 8-16. eða eftir samkomulagi.
Mæðravernd er í umsjá ljósmóður í samráði við lækna HSSA eða sérfræðinga kvennadeildar LSH eftir því sem við á.
Allar verðandi mæður eru velkomnar í mæðravernd. Markmiðið er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.
Æskilegt er að konur komi í fyrstu skoðun 10 - 12 vikum eftir síðustu blæðingar en velkomið er að hafa samband við lækni eða ljósmóður fyrr ef óskað er. Fjöldi mæðraskoðana fer eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Faðir eða annar stuðningsaðili og eldri systkini eru velkomin með.
Ljósmæður stöðvarinnar sjá um mæðraverndina. Samráð er haft við sérfræðinga í fæðingarhjálp þegar þörf er á.
Ómskoðun er gerð hjá öllum þunguðum konum sem þess óska í 19. - 20. viku meðgöngu á Kvennadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Eftirskoðun stendur til boða 6 - 8 vikum eftir fæðingu. Þá er m.a. rætt um getnaðarvarnir.
Hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður. Móttökuritarar taka niður skilaboð og haft verður samband eins fljótt og hægt er.
Ljósmóðir er Áslaug Valsdóttir.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


