Lyfjaendurnýjun
Beinn sími 470 8600
· Lyfjaendurnýjun er hægt að panta alla virka daga frá kl. 08:00-12:00 í síma 470 8600.
· Eingöngu eru endurnýjuð þau lyf sem tekin eru að staðaldri og áður útgefin af læknum.
· Athugið að beiðni þarf að berast fyrir kl 12.00 ef afgreiðsla á að fara fram samdægurs.
· Nauðsynlegt er að hafa nákvæmar upplýsingar um lyfið, heiti þess, styrkleika og hve oft það er tekið á dag.
· Mikilvægt er fyrir sjúklinga að verða ekki lyfjalausir og því best að fá lyf endurnýjuð 2-3 dögum áður en síðasti skammtur
er búinn.
· Nauðsynlegt er að panta tíma hjá heimilislækni eða ræða við hann símleiðis ef hann hefur ekki ávísað umbeðnu lyfi áður
og ef langt er síðan hann hefur ávísað lyfinu.
· Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lyfjaendurnyjun@hssa.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, lyf (heiti, styrkleika,
hve oft tekið á dag) og apótek. Þessir lyfseðlar eru að jafnaði afgreiddir um hádegisbil dag hvern.
Fjölnota lyfseðlar:
Mikið hagræði er að því fyrir alla aðila að nota fjölnota lyfseðla ef um samfellda lyfjanotkun er að ræða til langs tíma
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


