Heilsugæslan
Sími: 470 8600 Neyðarsími 112
Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði. Svo segir í lögum um heilbrigðisþjónustu.
Heilsugæslan er staðsett á Víkurbraut 31 og er opin frá kl. 8-16 alla virka daga. Utan þess tíma má ná í læknavakt í 112 í tilfellum sem ekki geta beðið opnunar heilsugæslustöðvarinnar. Í brýnni neyð er bent á Neyðarlínuna 112.
Heilsugæslan veitir öllum heilbrigðisþjónustu. Þar getur almenningur gengið að vísri þjónustu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar, bráðaþjónustu, heilsuverndar og forvarna og fengið ráðgjöf og leiðbeiningar.
Hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði er Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir, Bs. hjúkrunarfræðingur frá HÍ netfang: ester@hssa.is

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


