Góðir gestir á aðventu.
Sú skemmtilega hefð hefur skapast að rithöfundar sem koma til Hornafjarðar að lesa uppúr verkum sínum á aðventunni koma til okkar á hjúkrunardeildina og lesa fyrir heimilisfólk. Í gær fimmtudaginn 6. desember komu Bjarni Harðarson, Steinunn Kristjánsdóttir, Heiðrún Ólafsdóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og kynntu verk sín. Einnig kom Svarar Knútur tónlistarmaður og spilaði og söng fyrir og með heimilisfólki. Við þökkum þessum góðu gestum kærlega fyrir komuna.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd